Lífið

Miðasala á Þjóðhátíð hefst á næstu dögum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Margir munu gleðjast að komast á Þjóðhátíð eftir hlé í fyrra.
Margir munu gleðjast að komast á Þjóðhátíð eftir hlé í fyrra. Vísir/Óskar P. Friðriksson

Miðasala á Þjóðhátíð hefst á allra næstu dögum.„Við hlökkum til að sjá þig í Herjólfsdal, þar sem lífið er yndislegt - á ný!“ segir í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar.

„Eftir að Þjóðhátíð var aflýst á síðasta ári höfum við í ÍBV íþróttafélagi unnið að því að skipuleggja glæsilegustu Þjóðhátíð sem sést hefur. Áætlanir stjórnvalda hafa verið mikill byr í seglin og gleður það okkur að tilkynna að ef þær áætlanir ná fram að ganga mun Þjóðhátíð 2021 fara fram í Herjólfsdal um Verslunarmannahelgina,“ segir í tilkynningunni.

Miðasalan fer fram á dalurinn.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.