Lífið

Bar­áttu­maður fyrir Brexit vill Bret­land úr Euro­vision

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Farage (t.v.) vill að Bretland hætti að taka þátt í Eurovision. Newman (t.h.) fékk ekki eitt einasta stig á úrslitakvöldinu í gær.
Farage (t.v.) vill að Bretland hætti að taka þátt í Eurovision. Newman (t.h.) fékk ekki eitt einasta stig á úrslitakvöldinu í gær. Samsett/Getty

Nigel Farage, fyrrverandi formaður Breska sjálfstæðisflokksins og síðar Brexit-flokksins, og ötull stuðningsmaður útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, vill að Bretar hætti að taka þátt í Eurovision. Bretland fékk engin stig á úrslitakvöldi keppninnar í gær.

„Ég hef sagt þetta áður en við verðum að yfirgefa þennan alþjóðasinnaða Eurovision-farsa,“ segir Farage í Facebook-færslu sem birtist á opinberri síðu hans fyrr í dag.

Með færslunni fylgir mynd af stigatöflunni frá úrslitakvöldinu þegar langt var liðið á stigagjöfina. Eins og áður sagði fékk Bretland engin stig, hvorki frá dómnefndum þátttökulanda né í gegn um símakosningu, og hafnaði því í 26. og neðsta sæti á úrslitakvöldinu. Framlag Bretlands var lagið Embers með söngvaranum James Newman, sem virtist taka tapinu ágætlega, þrátt fyrir allt.

Eins og áður sagði hefur Farage verið áberandi talsmaður fyrir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Hann var sérlega áberandi árið 2016 þegar Bretar gengu til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið, og barðist ötullega fyrir málstaðnum með ýmsum leiðum. Eftir að hafa náð fram vilja sínum, að fá Bretland út úr ESB, virðist hann nú vilja sjá landið sitt hverfa frá þátttöku í Eurovision.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.