Sport

Æfingafélagar Katrínar Tönju geta tryggt sig inn á heimsleikana á undan henni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
S.A.C.K æfingarhópur Katrínar Tönju Davíðsdóttur er til alls líklegur á heimsleikunum í ár.
S.A.C.K æfingarhópur Katrínar Tönju Davíðsdóttur er til alls líklegur á heimsleikunum í ár. Instagram/@amandajbarnhart

Það styttist óðum í undanúrslit heimsleikanna í CrossFit þar sem besta CrossFit fólksins getur loksins tryggt sér þátttökurétt á heimsleikunum í haust.

Íslenska CrossFit fólkið fær ekki að keppa á staðnum í ár heldur mun það áfram skila sínum æfingum í gegnum netið eins og í The Open og í átta manna úrslitunum.

Katrín Tanja Davíðsdóttir býr og æfir í Massachusetts fylki í Bandaríkjunum en þarf samt að tryggja sig inn á heimsleikana í gegnum Evrópu.

Öflugur æfingarhópur Katrínar Tönju Davíðsdóttur hefur vakið athygli en í þeim hópi er silfurfólkið Katrín Tanja og Sam Kwant frá síðustu heimsleikum auk þeirra Amöndu Barnhart og Chandler Smith sem eru einnig mjög öflug og líkleg til að tryggja sig inn á heimsleikana í ár.

S.A.C.K liðið eins og þau kalla sig „Sam-Amanda-Chandler-Katrin“ hefur verið að æfa á fullu síðustu mánuði en nú styttist í stóra prófið.

Katrín Tanja missir nú æfingafélaga sína úr æfingahópnum um tíma því þau Barnhart og Kwant geta tryggt sig inn á heimsleikana á undan Katrínu Tönju og Smith um næstu helgi.

MidAtlanticCrossFit Challenge undankeppnin er undankeppni á staðnum en þar er á ferðinni ein af undanúrslitakeppnum Norður-Ameríku. Fimm efstu karlarnir og fimm efstu konurnar fá farseðil á heimsleikana í Madison. Amanda Barnhart og Sam Kwant gera sig örugglega von um að ná einu af þessum sæti en samkeppnin er hörð eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.

Næstu fjórar konur og þrír karla á eftir tryggja sér þátttökurétt í síðasta mótinu sem fer fram eftir að öll undanúrslitamótin hafa farið fram. Þar fá þau lokatækifæri til að komast inn á heimsleikana.

MidAtlanticCrossFit Challenge mótið fer fram 28. til 30. maí. Þetta mót fer vanalega fram í Washington DC en fer nú fram í Tennessee fylki.

Katrín Tanja sendir sinni konu skilaboð á Instagram. „Góða ferð stelpan mín. Ég mun öskra á skjáinn,“ skrifaði Katrín Tanja í skilaboð við færslu Amöndu Barnhart þar sem hún sést vera að leggja í hann til Knoxville þar sem mótið fer fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×