Lífið

Birkir fagnar af­mælis­deginum með Sophie sinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Birkir og Sophie í góðum málum á Ítalíu.
Birkir og Sophie í góðum málum á Ítalíu.

Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er 33 ára í dag og fagnar hann afmælisdeginum í örmum kærustu sinnar Sophie Gordon á Ítalíu, nánar tiltekið á eyjunni Trémiti.

Sophie birtir fallegar myndir af ferðalagi þeirra á Instagram og þar óskar hún honum til hamingju með afmælið og segist elska hann. Parið hefur verið saman í tvö ár ef marka má færslu Sophie.

Sophie skrifar einfaldlega á íslensku: „Ég elska þig Birkir Bjarnason.“

Birkir Bjarnason leikur í dag með Brescia í ítalska boltanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.