Bílar

Volvo XC40 Recharge 100% hreinn rafmagnsjepplingur

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Volvo XC40 Recharge 100% hreinn rafmagnsjepplingur.
Volvo XC40 Recharge 100% hreinn rafmagnsjepplingur.

Brimborg hefur hafið sölu á netinu á Volvo XC40 Recharge, nýjum, sjálfskiptum, fjórhjóladrifnum jeppling sem gengur 100% fyrir hreinu rafmagni. Volvo XC40 Recharge er yfir 400 hestöfl, aðeins 4,9 sekúndur í 100 km hraða og með drægni á hreinu rafmagni allt að 418 km skv. WLTP mælingu. Snögg hraðhleðslan kemur 78 kWh tómri drifrafhlöðu í 80% hleðslu eða 334 km drægni á aðeins 40 mínútum.

Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Brimborg.

Volvo rafmagnsjepplingurinn er einstakur, fjórhjóladrifinn, ferðabíll. Frábær sæti sem fara vel með ökumann og farþega er einkennismerki Volvo ásamt því að farangursrými eru tvö, eitt að aftan og annað að framan. Að aftan er það 452 lítrar og stækkanlegt í 1.328 lítra og að framan er 31 lítra farangursgeymsla. Veghæð er 17,6 cm undir lægsta punkt og dráttargeta eftirvagns með hemlum er 1.800 kg.

Care By Volvo í fyrsta sinn á Íslandi

Með nýja Volvo rafmagnsjepplingnum kynnir Brimborg í fyrsta sinn á Íslandi Care By Volvo sem tryggir áhyggjulaus kaup, notkun og rekstur. Í Care By Volvo felst að bíllinn kemur á sérhönnuðum heilsársdekkjum fyrir rafbíla og öll þjónusta, viðhald, ábyrgðar- og kaskótrygging með drifrafhlöðutryggingu í 3 ár eða að 100.000 km er innifalið í kaupverði. Að auki er bíllinn með lengri verksmiðjuábyrgð sem er 5 ár og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu sem tryggir að endursöluverð Volvo er með því hæsta sem þekkist.

Sé langtímaleiga valin er Care By Volvo einnig innifalið en að auki eru vetrardekk og umfelgun innifalin í leiguverði.

Volvo öryggi aldrei verið meira

Eins og með aðra Volvo bíla er öryggi ökumanns, farþega og annarra vegfarenda í hávegum haft og hafa Volvo bílar aldrei verið öruggari. Öryggiskerfi eins og ABS hemlakerfi, SIPS hliðarárekstrarvörn, WHIPS bakhnykksvörn, veglínuskynjari, borgaröryggi (City Safety), BLIS myndavél fyrir hliðarumferð, Cross-Traffic öryggiskerfi og Pilot Assist hjálparstýring tryggir fimm stjörnu öryggi í umferðinni.

Volvo XC40 Recharge 100% hreinn rafmagnsjepplingur

Framúrskarandi tækni með Android Auto stýrikerfi

Volvo XC40 Recharge er tæknilega framúrskarandi með 12,3“ skjá með einstöku Android Auto stýrikerfi sem m.a. inniheldur Google Assistant, Google Maps og Google Play, Apple Car Play og Android Auto þráðlausa speglun, Volvo appi og sjálfvirka netuppfærslu hugbúnaðar (OTA).

Ríkulegur Nordic staðalbúnaður fyrir kalt loftslag

Volvo XC40 Recharge rafmagnsjepplingurinn býðst í tveimur útfærslum, Plus og Pro, báðar ríkulega búnar og sérstaklega aðlagaðar að köldu loftslagi. Þar má finna upphitanlegt leðurstýri, upphitanleg framsæti, varmadælu, forhitara sem er fjarstýrður með appi eða á skjá og jafnvel Volvo merkið í grillinu er upphitað. Pro útfærslan kemur aukalega með Panorama glerþaki með sóllúgu, Harman Kardon hljómtækjum, rafdrifnum sætastillingum, LED aðalljós með beygjustýringu og 360 gráðu myndavél.

Bein kaup, græn fjármögnun eða langtímaleiga

Volvo XC40 Recharge kostar frá 8.090.000 kr. með Care By Volvo í beinum kaupum og býður Brimborg margvíslega kosti í hagstæðri grænni fjármögnun. Einnig býður Brimborg langtímaleigu í 36 mánuði með mánaðarlegum greiðslum. Í öllum tilvikum býður Brimborg að kaupverð eldri bíls renni upp í kaupverð nýja bílsins eða að það sé greitt út ef um langtímaleigu er að ræða.

Nú til sölu á netinu

Volvo XC40 Recharge rafmagnsjepplingurinn er nú þegar til sölu á netinu í Vefsýningarsal Brimborgar á www.brimborg.is. Þar er hægt að velja um úrval bíla á leið til landsins í fjölmörgum litum. Þegar draumabíllinn er fundinn er hægt með einum netsmelli að fá samband við söluráðgjafa, skipuleggja reynsluakstur, ganga frá kaupum eða leigu og uppítöku á eldri bíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×