Lífið

Opna 45 kíló­metra göngu­leið milli Knarrar­ós- og Sel­vogs­vita

Atli Ísleifsson skrifar
Nafngiftin kemur vegna vitanna, Selvogsvita og Knarrarósvita sem marka upphaf og enda leiðarinnar, að auki er þriðji vitinn á leiðinni Hafnarnesviti í Þorlákshöfn.
Nafngiftin kemur vegna vitanna, Selvogsvita og Knarrarósvita sem marka upphaf og enda leiðarinnar, að auki er þriðji vitinn á leiðinni Hafnarnesviti í Þorlákshöfn. Markaðsstofa Suðurlands

Vitaleiðin, ný göngu- og hjólaleið við suðurströndina, verður formlega opnuð á laugardaginn. Leiðin er um 45 kílómetrar að lengd og liggur milli Knarrarósvita, austur af Stokkseyri, og Selvogsvita, vestur af Þorlákshöfn.

Opnunarhátíðin verður næsta laugardag klukkan 13 við Stað á Eyrarbakka. Verða þar flutt ávörp og tónlistaratriði, auk þess að bæjarstjórar Árborgar og Ölfuss munu klippa á borða og þannig formlega opna leiðina.

Knarrarósviti.Wikipedia Commons

Laufey Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Markaðsstofu Suðurlands, segir nafnið, Vitaleiðin, einmitt koma til vegna Selvogsvita og Knarrarósvita sem marka upphaf og enda leiðarinnar, auk þriðji vitans sem er á leiðinnim Hafnarnesvita í Þorlákshöfn.

„Það er skemmtilegt að tengja þetta við vitana, þeir hafa um áraraðir vísað sjófarendum leiðina að landi. Nú erum við að vísa ferðamönnum á milli vitanna. Þetta er staður sem þú getur náð tengingu við náttúruna og undið ofan af daglegu lífi. Ert að anda að þér sjávarloftinu og ert í tengslum við náttúruna. Ég mæli til dæmis með að dýfa tánum í Atlantshafinu og ganga. Það er æðislegt,“ segir Laufey.

Markaðsstofa Suðurlands

Ekki stikuð leið

Laufey segir að ekki sé um sérstaklega stikaða leið að ræða en á helstu stöðum séu skilti. Annars sé bara málið að ganga eða hjóla meðfram ströndinni.

Selvogsviti.Visit South Iceland

„Frá Knarrarósvita og að Stokkseyri er slóði og svo geturðu alltaf fært þig að fjörunni. Þú gengur meðfram strandlengjunum og svo þegar þú ert komin í þorpin – Stokkseyri, Eyrarbakka og Þorlákshöfn – þá getur þú gengið inni í þorpinu. Á Eyrarbakka er til dæmis tilvalið að ganga á sjóvarnagarðinum, hann er alveg nógu breiður til þess og skemmtilegt að horfa til beggja átta, inn í þorp og til sjávar. Frá Íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn er svo gamall slóði út í Selvog og Selvogsvita.“

Hún segir að Vitaleiðin sé tilvalin fyrir þá sem vilja ferðast hægar yfir, njóta og vinda ofan sér með aðstoð kyrrðarinnar í náttúrunni en um leið soga í sig orkuna frá Atlantshafinu. „Gönguleiðin er mátulega löng og vel hægt að skipta henni upp í tvær eða þrjár dagleiðir. Þarna er líka að finna fjölbreytta afþreyingu, mat og gistingu á leiðinni, fyrir utan náttúruupplifunina að sjálfsögðu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.