Áltak er leiðandi fyrirtæki á íslenskum byggingamarkaði og hefur verið það frá stofnun þess árið 1997. Megin áhersla fyrirtækisins hefur í gegnum tíðina verið að veita heildarlausnir í álklæðningum og undirkerfum. Vöruúrval hefur aukist verulega á undanförnum árum og í því sambandi má nefna til dæmis vöruhúsalausnir.
Áltak býður heildarlausnir fyrir vöruhús en fyrirtækið fer meðal annars með umboð sænska fyrirtækisins Eab sem hefur sérhæft sig í vöruhúsalausnum og hillukerfum. Bretta- og hillukerfin frá Eab uppfylla evrópska öryggisstaðla og segir Hlynur Magnússon sölumaður hjá Áltaki um gæðavörur að ræða frá rótgrónu fyrirtæki.

„Eab er fyrirtæki í Svíþjóð sem hefur sérhæft sig í ýmiskonar vöruhúsalausnum og hillukerfum síðan 1957. Allar þeirra vöruhúsalausnir eru framleiddar í þeirra eigin verksmiðju í Smålandsstenar í Svíþjóð,“ segir Hlynur.

Hillukerfið frá EAB hefur mikla burðargetu og er mjög auðvelt í uppsetningu og hentar vel bæði í geymsluna heima sem og stór vöruhús. Hillurnar eru sterkar og stöðugar og eru langhliðar hillanna prófílbeygðar sem tryggir mikinn burð og stífingaplötur tryggja stöðugleika gaflanna. Hillurnar er hægt að fá í ýmsum lengdum og dýpt sem gerir það auðveldara fá passandi stærðir í hvert rými. Hillukerfið býður upp á fjölbreytta möguleika. Smávörulager þar sem lofthæðin er nýtt til fulls, hillukerfi á brautum sem festar eru í gólfi og milliloft sem gefa viðbótar gólfpláss og stækka lagersvæðið.

Lausnir fyrir brettavöru
„EAB er einnig með ýmsar lausnir varðand brettavöru. Þetta eru hefðbundnir brettarekkar þar sem hægt er að bæta við útdraganlegum hillum, keflarekka ásamt öðru. Greinarekkar eru mjög hentugir þegar lagerfæra á td : plötur, timbur og fleira,“ útskýrir Hlynur.
Rekkarnir frá EAB eru eftir stöðluðu kerfi en kerfið býður einnig upp á lausnir svo hægt er að aðlaga kerfið að þörfum hvers viðskiptavinar. „Þannig er hægt að ná hámarksnýtingu á hverju lagerrými,“ segir Hlynur.
Hægt er að setja upp svokallaða rúllurekka þegar unnið er með vöru með mikla hreyfingu.Gegnumstreymisrekkar henta einnig þegar vara hefur takmarkaðan líftíma en þá er varan sett inn á annarri hlið rekkans og tekin út á gangstæðri hlið. Þrýstirekkar eru hannaðir svo að fyrsta brettið sem fer inn í rekkann kemur seinast út.

Lestun og losun
Áltak selur einnig hleðslubúnað og iðnaðarhurðir frá Loading Systems. Loading Systems er Hollenskur framleiðandi og er verksmiðjan staðsett er í Hollandi.
„Við höfum sérpantað vörur frá Loading Systems í mörg ár en fyrirtækið er leiðandi á markaðnum í ýmsum lestunarbúnaði ásamt iðnaðarhurðum. Má þar nefna vörulyftur sem standa ýmist fyrir utan bygginguna eða strax fyrir innan hurð. Algengast er að lyftan sé staðsett í sérsmíðuðu hleðsluhúsi sem staðsett er utan við vörumóttöku. þar er komið fyrir hleðslubrú sem getur tekið við ýmsum stærðum vörubifreiða þar sem hún er hæðarstillt með vökvakerfi. svo getum við meðal annars boðið uppblásna veðurhlíf sem lokar fyrir veðri meðan verið er að losa/lesta bílinn,“ útskýrir Hlynur.

Nánari upplýsingar er að finna á www.altak.is