Logi Ólafsson var látinn taka pokann sinn í gær eftir 4-0 tap fyrir Breiðabliki í 9. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Við starfi hans tók Ólafur Jóhannesson en þeir Davíð Þór Viðarsson munu stýra FH-ingum út tímabilið.
„Maður á eiginlega ekki til orð. Ekki að þetta hafi komið á óvart að Logi hafi verið látinn fara en ég veit ekki hvað er að frétta þarna. Ég er eiginlega spenntastur núna, þegar Óli Jóh tekur við liðinu, að sjá hvað þessir aumingjans menn, leikmenn Fimleikafélags Hafnarfjarðar, eiga eftir að finna sem næstu afsökun fyrir lélegu gengi sínu,“ sagði Máni í Pepsi Max stúkunni.
„Þeir eru búnir að hafa Óla Kristjáns sem þjálfara og hann var ekki nógu skemmtilegur. Þeir fengu ekki borguð launin sín og það var vandamál. Þeir eru búnir að fá hvern þjálfarann á fætur öðrum og það er búið að kaupa leikmenn þarna inn,“ sagði Máni.
„Ég held að gengi FH-liðsins hafi ekki nokkurn skapaðan hlut með Loga Ólafsson að gera. Þessir leikmenn þurfa heldur betur að líta í eigin barm. Þetta er frábær leikmannahópur en staðreyndin er sú að enginn í honum hefur sýnt okkur neitt í heilt tímabil að hann sé góður leikmaður. Ef þú ættir að kalla þetta lið eitthvað væri þetta Sigga Hlö-liðið, Veistu hver ég var? Ég var einu sinni góður í fótbolta.“
Til háborinnar skammar
Máni hélt áfram og sagði að stuðningsmenn FH og allir þeir sem starfa í kringum félagið ættu skilið að sjá betri frammistöðu frá leikmönnum liðsins.
„Fyrir mér er til háborinnar skammar að sjá þetta, eins og í gær [í fyrradag]. Jesús minn almáttugur. Það var eins og menn nenntu þessu ekki. Menn gátu ekki hlaupið eftir manninum sínum. Þetta hefur ekkert að gera með að þeir séu ekki í standi. Sú afsökun er alltaf notuð. Það eru allir leikmenn með hlaupavesti og þú hlýtur að sjá hvort þeir hreyfi sig,“ sagði Máni.
Eitt sigurlið í viðbót
Reynir Leósson sagði að tíðindi gærdagsins úr Kaplakrika hafi ekki komið sér á óvart.
„Maður er spenntur að sjá Óla Jóh þarna. Hann er upphafsmaðurinn að velgengni FH og fór í gegnum ótrúlega sigurhrinu með félagið. Hann mun ekki gera það í ár, ég efast um að þeir verði Íslandsmeistarar en gætu náð í bikarmeistaratitil,“ sagði Reynir. Hann trúir því að Ólafur sé enn hungraður í að ná árangri.
„Ég veit það og hann sagði það við mig að hann langi til að búa til eitt sigurlið í viðbót,“ sagði Reynir.

Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.