Lífið

Bó „í barneignum“ á gamals aldri

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Bjarni Benediktsson og hundurinn Bó mættu saman í myndatöku þegar fjármálaráðherrann var gestur í Einkalífinu hér á Vísi.
Bjarni Benediktsson og hundurinn Bó mættu saman í myndatöku þegar fjármálaráðherrann var gestur í Einkalífinu hér á Vísi. Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra deildi krúttlegum fréttum af hundi sínum Bó á samfélagsmiðlum. Fjölskyldan hefur átt hundinn um árabil en nú stendur hann í stórræðum. 

„Á gamals aldri þótti honum rétt að hefjast handa við barneignir og hefur nú eignast sjö hvolpa í tveimur gotum, skrifar Bjarni í færslu á Facebook. Með færslunni birti hann mynd af Bó ásamt hvolpinum Sushi. 

„Við vorum svo heppin að fá eitt afkvæmið í fjölskylduna, þegar Sushi litla flutti heim til Margrétar dóttur okkar á dögunum. Eins og sjá má er talsverður svipur með þeim feðginum.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.