Lífið

Þór­hildur Sunna gekk í það heilaga í garðinum heima

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir giftist unnusta sínum Rafal Orpel í gær.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir giftist unnusta sínum Rafal Orpel í gær. vísir/hanna

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingkona Pírata, giftist unnusta sínum Rafal Orpel í gær. Athöfnin fór fram í garðinum heima hjá parinu og voru aðeins þeir allra nánustu viðstaddir.

Þórhildur greinir frá tíðindunum í færslu á Facebook-síðu sinni. Hún segir þau ekki hafa geta beðið með að gifta sig, þó svo að brúðkaupsveislan sjálf muni fara fram á næsta ári.

„7.7. er dagurinn sem við byrjuðum saman fyrir þremur árum og því réttur dagur til þess að játast hvert öðru,“ segir Þórhildur í hjartnæmri Facebook-færslunni.

Aðeins þau allra nánustu voru viðstödd athöfnina. Hér má sjá brúðhjónin ásamt syninum Antoni Erni og foreldrum Þórhildar.Þórhildur Sunna Ævarsdóttir

Athafnastjóri var Inga Auðbjörg Straumland, unnusta Helga Hrafns Gunnarssonar, flokksbróður Þórhildar. Í færslunni færir Þórhildur henni sérstakar þakkir fyrir að hafa stokkið til og gefið parið saman með engum fyrirvara.

Parið hefur þó verið trúlofað í eitt og hálft ár eða síðan á aðfangadag árið 2019.

„Ég er ótrúlega hamingjusöm kona enda ekki hægt að hugsa sér betri eiginmann,“ segir Þórhildur.

Árið hefur verið sérstaklega viðburðaríkt hjá þeim hjónum, en þau eignuðust soninn Antoni Örn Orpel þann 20. febrúar síðastliðinn. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.