Peugeot e-208 sigraði keppni í nákvæmnisakstri annað árið í röð Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 18. júlí 2021 07:01 Didier Malaga og Valérie Bonnel sem tryggðu sér fyrsta sætið í nákvæmnisakstri á Peugeot e-208. Rafbíllinn Peugeot e-208 sigraði í nákvæmnisakstri (Regularity Rally) en dagana 9-10. júlí fór fram Ísorka eRally Iceland 2021. Það voru Didier Malaga og Valérie Bonnel sem tryggðu sér fyrsta sætið í nákvæmnisakstri á Peugeot e-208 frá Brimborg. Didier og Valérie urðu heimsmeistarar árið 2018, í fyrsta mótinu hér á landi, og í öðru sæti árið 2019. Í öðru sæti í nákvæmnisakstri í ár voru Gunnlaugur og Patrekur á VW ID4 og í því þriðja Hákon og Hinrik á Tesla Model 3.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Brimborg. Nákvæmnisakstur er ótrúlega krefjandi akstur því frávik frá uppgefnum meðalhraða má ekki vera meira en 1/10 úr sekúndu og eru frávik mæld með mjög nákvæmum GPS búnaði um 200 sinnum á öllum af 21 akstursleið. Ísorka eRally Iceland hluti af FIA heimsmeistaramóti Ísorka eRally Iceland er keppni sem er hluti af mótaröð af FIA (Alþjóða akstursíþróttasambandið) heimsmeistaramóti sem kallast Electric and New Energy Championship þar sem keppt er í nákvæmnisakstri (Regularity rally) og sparakstri). Markmið eRally er að kynna nýjustu tækni ökutækja sem ætlað er að spara orku og gefa frá sér minnsta mögulegt magn mengunar og koltvísýrings. Því er einnig ætlað að hvetja alla ökumenn til að breyta akstri með áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni bílaumferðar með því að nota rafmagn sem drifkraft ökutækja. Heimsmeistaramótið í e-rallý (E-Rally Regularity Cup) er að öllu leyti helgað rafknúnum ökutækjum. Ekki má gera neinar breytingar á bílunum og verða keppendur að geta notað ökutæki sín til daglegrar notkunar. Markmið keppninnar er að keyra akstursleið á ákveðnum tíma og ákveðnum meðalhraða. Til viðbótar þarf ökumaður að huga að rafmagnseyðslunni og halda henni í lágmarki. Refstig eru gefin ef keyrt er of hratt eða of hægt, of stutt eða of langt og einnig eru gefin refsistig ef eyðsla í keppninni er umfram uppgefna raforkunotkun bílsins skv. WLTP staðli. Keppnisbíllinn Peugeot e-208 Peugeot e-208 er 100% hreinn rafbíll sem Brimborg býður til sölu í sýningarsal Peugeot á Íslandi. Bíllinn er með 136 hestafla, hljóðlátri rafmagnsvél og 260 Nm togkrafti. Hann er búinn 50 kWh drifrafhlöðu og er drægni bílsins skv. WLTP mælingu 340 km. Hægt er að hlaða drifrafhlöðu bílsins bæði heima, í vinnu eða á hraðhleðslustöð og tekur aðeins 30 mínútur að hlaða tóma rafhlöðuna í 80% drægni. Allir rafbílar Peugeot eru með fjarstýrðum forhitara sem tryggir að bíllinn er alltaf heitur og einnig er varmadæla staðalbúnaður í öllum Peugeot rafbílum. Varmadæla er mikilvægur búnaður í rafbílum, sérstaklega á Íslandi, því hún nýtist best í hitastigi sem er frá -5 til +15. Varmadælan endurnýtir orku úr umhverfinu fyrir miðstöð og drifrafhlöðu bílsins sem gerir því kleift að ekki þarf að nota eins mikla orku frá drifrafhlöðunni til að hita eða kæla bílinn. Það getur munað allt að 50 km eða um 15% af drægni bílsins hvort varmadæla er í bílnum eða ekki. Rafbílar án varmadælu þurfa annars að nota hluta af orku rafhlöðunnar fyrir miðstöðina.
Vistvænir bílar Mest lesið „En við munum sjá til þess að allt fari vel“ Erlent Skoðaði staðsetningu stúlkunnar hátt í 150 sinnum fyrir árásina Innlent „Að gera þetta svona rétt fyrir sauðburð þykir okkur mjög grimmilegt“ Innlent Ný þrjátíu milljarða króna álma bætist við Leifsstöð Innlent Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent Spyr sig hvort eftirlitsnefnd hafi unnið hratt í „þágu tiltekinnar niðurstöðu“ Innlent „Við þurfum einhvers staðar að draga saman á móti“ Innlent Bein útsending: Gera aðra atlögu að tunglinu Erlent Óbólusett barn lést vegna mislinga Erlent Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Innlent
Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent
Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent