Styrkur til uppbyggingar og atvinnusköpunar í Búrkína Fasó Heimsljós 28. júlí 2021 07:30 Haraldur Pálsson, stofnandi Áveitunnar ehf. og Ágústa Gísladóttir, deildarstjóri á alþjóða- og þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, við undirritun samningsins. Áveitan ehf. fær tæplega þrjátíu milljóna króna styrk meðal annars til byggingar íbúðarhúsnæðis og til að bæta aðgengi að vatni og ræktarlandi. Utanríkisráðuneytið hefur veitt fyrirtækinu Áveitunni ehf. tæplega þrjátíu milljóna króna styrk til uppbyggingar og atvinnusköpunar í Búrkína Fasó. Styrkurinn er veittur úr Samstarfssjóði við atvinnulífið um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Verkefnið miðar að uppbyggingu og atvinnusköpun á landsvæði sem ABC barnahjálp hefur til umráða í borginni Bobo-Dioulasso í vesturhluta Búrkína Fasó. Uppbyggingin felur meðal annars í sér aðgengi að vatni, ræktarlandi og byggingu íbúðarhúsnæðis. Til stendur að bora eftir vatni og reisa vatnsturna á landsvæðinu og þá verða einnig settar upp sólarsellur sem tengjast vatnsdælum í þeim tilgangi að tryggja rafmagn og sjálfbærni vatnsflæðis. Enn fremur verður landið stikað og skipt upp fyrir ræktun mismunandi afurða, til að mynda fyrir maís, baunir, grænmeti, ávexti og hnetur. Stefnt er að því að rækta matvæli allt árið og til þess þarf að leggja vatnskerfi um svæðið. Auk þess verða byggð einföld raðhús fyrir flóttafólk og verður hverri fjölskyldu úthlutaður skiki af landinu til þess að rækta mat fyrir heimilið. Þá verður reistur múr umhverfis landið til þess að vernda það frá ágangi skepna sem ganga frjálsar. Markmið verkefnisins er enn fremur að hluti af þeim mat sem ræktaður verður á landinu verði nýttur í skóla ABC barnahjálpar í Bobo-Dioulasso. Auk þess er áætlað að þeir foreldrar barna í skólanum sem koma munu að ræktuninni, ásamt þeim fjölskyldum sem búa munu á landinu, geti selt hluta af ræktuninni og þar með aflað sér tekna. Áætluð verklok eru í lok árs 2023. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Búrkína Fasó Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Erlent Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Innlent Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Búrkína Fasó Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Erlent Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Innlent Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Innlent