Vissulega er Model S Plaid fljótari á pappírnum. Hann er 1020 hestöfl og 2192 kg. á móti 750 hestöflum í Taycan Turbo S sem er svo 2404 kg.
Munurinn er það sem situr eftir, af þremur spyrnum vann Tesla-n þær allar. Vegalengdin var hinn klassíska kvart míla (402 metrar). Myndbandið er frá Youtube rásinni DragTimes.
Fyrsta:
- Model S Plaid: 9,673 sekúndur og endaði á 243 km/klst
- Taycan Turbo S: 10,422 sekúndur og endaði á 209 km/klst
Önnur:
- Model S Plaid: 9,360 sekúndur og endaði á 243 km/klst
- Taycan Turbo S: 10,393 sekúndur og endaði á 209 km/klst
Þriðja:
- Model S PLaid: 9,344 sekúndur og endaði á 244 km/klst
- Taycan Turbo S: 10,379 sekúndur og endaði á 209 km/klst