Lífið

Sam­fé­lags­miðla­stjörnur njóta um verslunar­manna­helgina

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Hér má sjá þær Hildi Sif, Sunnevu Einars, Ínu Maríu, Kristínu Péturs, Magneu Björg, Birgittu Líf og Ástrósu Trausta sem skipa hópinn LXS.
Hér má sjá þær Hildi Sif, Sunnevu Einars, Ínu Maríu, Kristínu Péturs, Magneu Björg, Birgittu Líf og Ástrósu Trausta sem skipa hópinn LXS. Skjáskot/instagram

Samfélagsmiðladrottningar landsins njóta lífsins í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Eins og við má búast einkennist helgarferðin af miklum glamúr.

Instagram-stjörnurnar Birgitta Líf, Sunneva Einars, Ástrós Trausta, Kristín Péturs, Magnea Björg, Hildur Sif og Ína María skipa hópinn LXS.

Mikil leynd er yfir því hvað skammstöfunin stendur fyrir en því hefur verið velt upp að það standi fyrir lúxus. Nýlega lét hópurinn húðflúra skammstöfunina á sig.

Vinkonurnar dvelja ásamt mökum sínum í sannkölluðu lúxus húsi í Vestmannaeyjum. Veglegur gjafapoki beið þeirra við komu sem samanstóð af hinum ýmsu snyrtivörum. Þá biðu þeirra peysur og derhúfur sérmerktar LXS.

Hér má sjá brot af þeim gjöfum sem leyndust í gjafapokanum.

Fyrr í vikunni sýndu vinkonurnar frá því á Instagram þegar þær voru samankomnar á Kjarvalsstofu að undirbúa helgina og bjuggu þær meðal annars til sitt eigið drykkjuspil. 

Í gær mátti sjá vinkonurnar drekka kampavín og elda sannkallaðan sælkeramat. Um kvöldið klæddust þær allar alveg hvítu í svokölluðu „white-on-white“ partýi. Þá mátti einnig sjá þær skemmta sér í leiknum kubb.

Vinkonurnar voru glæsilegar í hvítu.Skjáskot/instagram
Hildur Sif og Birgitta Líf smelltu í sjálfu.Skjáskot/instagram
Ástrós Trausta og Birgitta Líf.Skjáskot/instagram
Kristín Péturs lét sig ekki vanta.
Vinkonurnar njóta lífsins í Vestmannaeyjum þrátt fyrir að Þjóðhátíð hafi verið aflýst.Skjáskot/instagram





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.