Albumm

Semur ambient í Bergen

Ritstjórn Albúmm.is skrifar

Tónlistarmaðurinn og 80´s stjarnan Davíð Berndsen var að senda frá sér glænýtt og spikfeitt lag sem heitir  Lunar Terraforming. 

Lagið er tekið af væntanlegri sólóplötu kappans sem margir bíða spenntir eftir, þar á meðal við!

Berndsen er búsettur í Bergen í Noregi og eins og segir hann að loksins gafst tími til að vinna að tónlistarsköpun. Laginu má lýsa sem einskonar 80´s ambíenti sem minnir mann svolítið á meistara eins og t.d  Vangelis sem samdi meðal annars tónlistina fyrir kvikmyndina Blade Runner sem kom út árið 1982. 

Ekki hika við að skella á play, þetta lag mun klárlega koma deginum af stað.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.