Lífið

Matthías fór á skeljarnar: „Auð­veldasta svar sem ég hef gefið“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Matthías kraup niður og bað Brynhildar, við mikinn fögnuð viðstaddra.
Matthías kraup niður og bað Brynhildar, við mikinn fögnuð viðstaddra. Skjáskot/Instagram

Tónlistarmaðurinn og dramatúrgurinn Matthías Tryggvi Haraldsson og söng- og leikkonan Brynhildur Karlsdóttir eru trúlofuð.

Brynhildur greinir frá þessu á Instagram-síðu sinni nú í kvöld. Þar deilir hún myndbandi þar sem parið er statt í Sky Lagoon. Þar má sjá Matthías krjúpa niður á eitt hné og opna litla öskju, sem ætla má að innihaldi trúlofunarhring. Því næst fellst parið í faðma og kyssist, við mikinn fögnuð annarra gesta lónsins.

„Auðveldasta svar sem ég hef gefið ❤️ Við erum semsagt trúlofuð og ég gæti bókstaflega ekki verið hamingjusamari eða ástfangnari 😍 elska þig beibí,“ skrifar Brynhildur með færslunni.

Greint var frá því í júní að parið væri saman. Brynhildur er meðal annars meðlimur hljómsveitanna Kvikindis og Hormóna en Matthías er hvað þekktastur fyrir að vera í hljómsveitinni Hatara, sem keppti fyrir Íslands hönd í söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðvar í Ísrael árið 2019.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.