Lífið

Innlit í einstakan bústað Kjuregej í Hvalfirðinum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Vala Matt heimsótti Kjuregej Alexandra Argunova í Hvalfjörðinn.
Vala Matt heimsótti Kjuregej Alexandra Argunova í Hvalfjörðinn. Ísland í dag

Listakonan Kjuregej Alexandra Argunova vekur alltaf athygli þar sem hún kemur og allt hennar umhverfi er töfrum líkast. Kjuregej er listakona, söngkona og leikkona. 

Sumarbústaður listakonunnar í Hvalfirðinum er engu líkur, byggður úr Síberíutré og Kjuregej hefur skreytt hann á ævintýralegan hátt með sérstökum flísum og fleiru sem er alveg einstaklega fallegt.

Risastór heimagerður arinn er í stofunni sem Kjuregej hefur sjálf skreytt. 

„Synir mínir gerðu stallinn. Ég fékk vini mína Finn Árnason og Áslaugu Thorlacius mér við hlið og undir minni stjórn eða handleiðslu, gátu þau byggt þetta upp. Ég kláraði svo en þetta tók náttúrulega tíma, þau voru svo elskuleg og falleg,“segir Kjuregej um verkefnið.  Sjálf skreytti hún arininn með fallegu mynstri.

Baðherbergið er allt mjög óvenjulegt og Kjuregej hannaði það sjálf.  Vala Matt fór í innlit í þennan sérstaka bústað og skoðaði dýrðina. 

Sonur Kjuregej er að vinna að mynd um hana.Ísland í dag

Svo hitti Vala einnig son Kjuregej, kvikmyndagerðarmanninn Ara Alexander Ergis Magnússon en hann er einmitt að vinna að heimildarmynd um móður sína. Ævintýraheimur sem gaman er að skyggnast inn í.


Tengdar fréttir

Innlit til Bjargar: Hitaklefi á pínulitlum svölum

Fatahönnuðurinn Björg Ingadóttir í Spaksmannsspjörum er ein af þekktustu og virtustu fatahönnuðum landsins. Björg fer yfirleitt ótroðnar slóðir enda hefur hún iðulega slegið í gegn með hönnun sinni.

Settu grill ofan í matarborðið á pallinum

Matgæðingarnir Reynir Þór Róbertsson og Vilborg Ása Fossdal létu sérsmíða einstakt grill sem sett var ofan í miðjuna á matarborðinu á pallinum þeirra. Hjónin höfðu lengi látið sig dreyma um að vera með svona grillborð en létu á dögunum drauminn rætast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.