„Salka Sól syngur í fyrsta sinn með okkur á upptöku þótt hún hafi reglulega stokkið upp á svið með okkur og hjálpað til við að flytja Tarantúlur,“ segir Arnar í samtali við Vísi.
„Hamfarapopp er fyrsta lagið sem við gefum út eftir óformlega pásu sem við tókum til að stofna fjölskyldur og heimili. Lagið var valið úr bunka af lögum sem við höfum samið síðastliðið ár og ætlum að gefa út formlega á næsta ári,“ segir Arnar, sem á nú von á sínu öðru barni með eiginkonu sinni Sölku Sól. Helgi Sæmundur á einn son með Kolfinnu kærustu sinni.
„Helgi býr á Sauðárkróki og þar verður öll nýja tónlistin til en síðustu þrjár breiðskífur hafa að nær öllu leiti verið samdar í kjöllurum í miðbæ Reykjavíkur. Það kemur því ekki á óvart að tónninn sé annar en áður – nú þegar innblásturinn er sveitin og börnin fremur en tjúttið í 101. Tjúttið er samt rótgróið í sál sveitarinnar og aldrei langt undan.“
Lagið Hamfarapopp má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.