Í tilkynningu frá segir að verkefni Friðriks og ábyrgð snúi aðallega að áhættumati, verðlagningu, vöruþróun og forvörnum.
„Friðrik hefur víðtæka reynslu á vátryggingarmarkaði, starfaði hjá Tryggingamiðstöðinni 1995-2006 og hjá Vátryggingafélag Íslands 2006-2020. Hann sat í framkvæmdastjórn VÍS til fjölda ára og kom þar m.a. að verkefnum í þjónustu, vöruþróun, vörustýringu, áhættumati, forvörnum og endurtryggingum. Síðustu misseri hefur Friðrik starfað hjá verkfræðistofunni EFLU við brunahönnun.
Friðrik er með meistarapróf í byggingar- og brunaverkfræði frá Tækniskólanum í Lundi í Svíþjóð. Hann er giftur Maríu Guðmundsdóttur, deildarstjóra í Laugarnesskóla og eiga þau þrjá syni,“ segir í tilkynningu.