Meðfylgjadi er fréttatilkynning frá BL.
Rafknúinn akstur
Arkana er búinn tækninni E-TECH hybrid bensínvélar og rafmótors til að hámarka nýtingu eldsneytis og takmarka mengun. Rafmótorinn, sem styðst við 1,2 kWh (230 V) rafhlöðu, gerir kleift að aka stutta vegalengd, allt að 5 km, eingöngu á rafmagni áður en aðalvélin kemur inn. Með endurheimt hemlaorku hleðst svo orka hratt og sjálfkrafa inn á rafhlöðu bílsins.

Þægindi
Arkana er vel búinn staðalbúnaði. Arkana er til dæmis með sjálfvirkum aðfellanlega og upphitaða hliðarspegla, sjálfvirka stillingu aðalljósa, regnskynjara á rúðuþurrkum og mismunandi akstursstillingum við 7 gíra sjálfskiptinguna. Af sömu ástæðu er Arkana líka búinn bakkaðstoð og fjarlægðarskynjurum og tækni sem getur lagt bílnum án aðstoðar í bílastæði. Þá er Arkana einnig búinn easy link-margmiðlunarkerfinu sem tengist snjallsímanum sem stjórnað er á stórum margmiðlunarskjá svo fátt eitt sé nefnt.

Öryggi
Öryggisins vegna er Renault Arkana svo búinn ýmsum aðstoðarkerfum fyrir þjóðvegi og umferðarteppur, umferðarskynjara og tækni sem ber kennsl á gangandi og hjólandi vegfarendur í nálægð við bílinn, dekkjaþrýstingsskynjara svo örfá dæmi séu nefnd um vel útilátinn staðalbúnað Arkana.
Verð Arkana Intens og RS line
Renault Arkana er fáanlegur í tveimur útfærslum, Intens og RS line, sem báðar eru búnar 1,6 lítra 143 hestafla bensínvél og rafmótor við sjö gíra sjálfskiptingu. Eyðsla er frá 4.9 l/100 km. Renault Arkana Intens kostar 5.690 þúsundir króna og RS line 5.990 þúsundir króna. Umfram Intens er RS line m.a. búinn 18“ sérhönnuðum álfelgum, svörtu glerþaki, rafdrifnum framsætum og leðri, Bose hljóðkerfi og 360°myndavél. Allar nánari upplýsingar um eiginleika og ríkulegan staðalbúnað Renault Arkana, Intens og RS line eru að finna á Renault.is.