Trjárækt í Sierra Leone til að sporna við áhrifum loftslagsbreytinga og auka fæðuöryggi Heimsljós 8. október 2021 13:46 Rauði krossinn Verkefnið byggir á þátttöku samfélaga á áherslusvæðum og hefur margþættan tilgang. Rauði krossinn á Íslandi, með stuðningi utanríkisráðuneytisins, mun í samstarfi við Rauða krossinn í Sierra Leone og Landgræðsluskólann hefja trjáræktarverkefni í nokkrum héruðum í Sierra Leone á komandi vikum og mánuðum. Verkefnið byggir á þátttöku samfélaga á áherslusvæðum í verkefninu og hefur margþættan tilgang að sögn Atla Viðars Thorstensen sviðsstjóra alþjóðasviðs Rauða krossins. „Verkefnið hefur ekki eingöngu þann tilgang að binda gróðurhúsalofttegundir með endurheimt skóglendis og stuðla þannig meðal annars að endurheimt lífríkis, heldur munu trén einnig binda vatn í jarðveginn og þannig koma í veg fyrir flóð og með tímanum auka fæðuöryggi fólks á svæðinu. Þetta er mjög þarft verkefni með hliðsjón af loftslagsbreytingum og aukinni tíðni hamfara, svo sem flóða og þurrka sem oft valda miklu tjóni og fæðuskorti. Við erum utanríkisráðuneytinu mjög þakklát fyrir þeirra stuðning og sömuleiðis Landgræðsluskólanum sem mun hafa mikilvægu hlutverki að gegna við þjálfun sjálfboðaliða og starfsfólks hjá Rauða krossinum í Sierra Leone sem koma til með að innleiða verkefnið.“ Rauði krossinn „Fyrir hönd þeirra sem munu njóta góðs af verkefninu vil ég þakka utanríkisráðuneytinu, Landgræðsluskólanum og Rauða krossinum á Íslandi fyrir þennan mikilvæga stuðning“, segir Kpawuru Sandy framkvæmdastjóri Rauða krossins í Sierra Leone. “Skógarhögg og eyðing skóga er mjög mikið vandamál hér í Sierra Leone og það þarf að bregðast við þeim vanda strax. Það hefur ekki aðeins í för með sér bætt lífsgæði fyrir þá sem eru hvað fátækastir heldur bindur aukin trjárækt einnig gróðurhúsalofttegundir sem gagnast ekki aðeins íbúum Sierra Leone. Við erum ótrúlega spennt fyrir þessu verkefni, bæði starfsfólk og sjálfboðaliðar sem munu koma til með að innleiða stærstan hluta af verkefninu með stuðningi frá kollegum okkar í Alþjóðasambandi Rauða krossins, Rauða kross félögunum á Íslandi og í Finnlandi og Landgræðsluskólanum á Íslandi.” Að auki styrkir utanríkisráðuneytið samfélagslegt heilbrigðisverkefni Rauða krossins í Sierra Leone þar sem markmiðið er að styrkja samfélög á svæðinu og styðja í átt að auknu heilbrigði, ofbeldisforvörnum og auknu kynjajafnrétti auk þess sem veitt eru smálán til að koma á sjálfbærum smáiðnaði í þeim samfélögum sem verkefnið nær til. Sierra Leone er lítið land í Vestur Afríku með rúmlega sjö milljón íbúum. Landið er eitt það fátækasta í heimi og rúmur helmingur þjóðarinnar dregur fram lífið á minna en 170 krónum á dag. Sierra Leone er jafnframt það land þar sem barna- og mæðradauði er hvað hæstur. „Aðstæður almennings í Sierra Leone eru nánast eins ólíkar íslenskum aðstæðum og hugsast getur“ segir Atli Viðar. „Fátækt er gífurlega útbreidd og hún bitnar meira á konum og stúlkum og með okkar aðkomu viljum við spyrna gegn fátækt og vinna að auknu kynjajafnrétti. Það er forsenda þróunar, bæði í Sierra Leone og annars staðar. Við vonumst eftir því að fá bæði almenning og fyrirtæki í landinu í lið með okkur í þessu mikilvæga verkefni. Loftslagsbreytingar eru fyrirbæri sem varða okkur öll og trjárækt í fjarlægu landi eins og Sierra Leone þar sem gróður vex hraðar en víðast hvar annars staðar er mikilvæg, skilvirk og hagkvæm mótvægisaðgerð sem ekki sé minnst á aukin lífsgæði þeirra sem njóta verkefnisins.“ Rauði krossinn á Íslandi leggur ríka áherslu á samstarf við fyrirtæki á Íslandi. Fyrr á þessu ári hleypti félagið af stokkunum nýjum sjóði, Sjálfbærnissjóði Rauða krossins Íslandi, sem er hugsaður til að færa fyrirtækjum nýja leið til efla samfélagslega ábyrgð sína. Hugmyndafræði sjóðsins er að tengja markmið fyrirtækja um sjálfbærni og samfélagsábyrgð við framlög til verkefna Rauða krossins, með því að beita alþjóðlega viðurkenndum stöðlum og mælikvörðum, í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og ESG (umhverfi, samfélag, stjórnhættir). Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Síerra Leóne Loftslagsmál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Síerra Leóne Loftslagsmál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent