Viðskipti innlent

Bilun olli því að Master­card-kortum var hafnað

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Bilunin olli því að ekki var hægt að greiða með debetkortum frá Mastercard hjá sumum greiðslumiðlurum.
Bilunin olli því að ekki var hægt að greiða með debetkortum frá Mastercard hjá sumum greiðslumiðlurum. Roberto Machado Noa/LightRocket via Getty

Bilun sem kom upp hjá Salt pay nú síðdegis olli því að truflun kom upp á heimildagjöf Mastercard-debetkorta hjá einhverjum greiðslumiðlunarfyrirtækjum. Forstjóri RB segir að ekki hafi verið um netárás að ræða og að unnið sé að greiningu á því sem kom fyrir.

Fréttastofu bárust ábendingar um að viðskiptavinir verslana hefðu átt í erfiðleikum með að greiða með korti. Þegar blaðamaður hringdi í greiðslumiðlunarfyrirtækið Verifone tók á móti honum símsvari sem hljómaði á þessa leið:

„Vegna bilunar hjá RB [Reiknistofu bankanna] er mikið álag á símkerfi Verifone þessa stundina. Truflun er á heimildagjöf á debetkortum og unnið að lagfæringu á því. Viðskiptavinum er bent á að nota kreditkort ef því verður við komið, meðan unnið er að lagfæringu.“ 

Hið rétta er þó að bilunina má rekja til sambandsleysis milli aðila: Salt Pay og RB. 

Engin netárás en málið skoðað

Í samtali við fréttastofu staðfesti Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri RB, að bilun hjá Salt Pay og RB sem lýsti sér í einhvers konar sambandsleysi milli aðila hafi valdið því að ekki tókst að gjaldfæra debetkort frá Mastercard.

„Það virðast hafa verið einhverjar hafnanir á milli fimm og sex, en þetta er komið í lag. Þetta hefur verið eitthvað sambandsleysi á milli aðila,“ sagði Ragnhildur.

Hún segir að ekki hafi verið um neina netárás að ræða, en í síðasta mánuði voru gerðar netárásir á greiðslumiðlunarfyrirtæki með starfsemi hér á landi, með tilheyrandi truflunum á starfsemi þeirra.

„Það er unnið að því að greina hvað kom upp. Þetta var ekkert alvarlegt eins og oft vill verða, en auðvitað vill maður ekki sjá þetta gerast.“

Uppfært klukkan 19:22: Í upprunalegri útgáfu fréttarinnar kom fram að bilunin hefði orðið í kerfum RB. Hið rétta er að um var að ræða sambandsleysi milli aðila, en málið er til rannsóknar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×