Lífið

Hestur hljóp á lögreglubíl

Samúel Karl Ólason skrifar
Hesturinn hlýddi ekki stöðvunarboðum lögreglunnar.
Hesturinn hlýddi ekki stöðvunarboðum lögreglunnar.

Lögregluþjónum brá heldur betur í brún þegar þeir voru kallaðir út vegna hests sem gekk laus í úthverfi London í gærmorgun. Þegar þeir mættu á vettvang kom hesturinn hlaupandi úr myrkrinu og hljóp á bíl þeirra.

Þegar þeir sáu hestinn snarhemlaði ökumaður bílsins og var kveikt á blikkljósum þeirra. Þrátt fyrir það hélt hesturinn ferðinni áfram þar til hann skall á bílnum og rann yfir húddið.

Lögreglan deildi myndbandi af atvikinu á Twitter í gær en tekið var fram í tístinu að hestinn sakaði ekki. Lögregluþjónar gómuðu hann skömmu síðar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.