Fyrst að hún var byrjuð á stofunni komst hún reyndar ekki hjá því að taka hjónaherbergið með, húsráðendum til mikillar lukku. Útkomuna má sjá í fjórða þætti af Skreytum hús, en þátturinn kom inn á Vísi og Stöð 2+ í dag.
„Það var bara allt upprunalegt, frá 1993. Þetta var samt ekkert skelfilegt, bara gult og gamaldags,“ útskýrir Almar. Telmu fannst eignin barn síns tíma og því vildu þau byrja á að rífa allt út úr stofunni og gera hana að sínu.
Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan og við mælum með því að þú horfir á þáttinn áður en þú lest áfram, þar sem lokaútkomuna má finna neðar í greininni. Nýr þáttur af Skreytum hús birtist svo hér á Vísi og á Stöð 2+ efnisveitunni alla miðvikudaga næstu vikur.
„Þar sem þetta var fyrsta íbúðin þeirra þá áttu þau ekki mikið af húsgögnum. Þau áttu sófa og hægindastól og síðan sjónvarpsskáp. Þá er það upptalið,“ sagði Soffía áður en hún fór af stað í búðirnar.
Parið var spenntast að „flytja inn í heimili en ekki hús.“


Byrjað var á að mála, setja lista, leggja parket og setja upp IKEA eldhúsinnréttingu. Þá var komið að því að skreyta rýmið, sem vill til að er sérgrein Soffíu.

„Þau eru búin að vera rosalega dugleg þannig að nú er komið að mér að vera dugleg og klára þetta fyrir þau.“

Munurinn var alveg magnaður eftir að hún hafði farið um eins og stormsveipur. Falleg húsgögn, ljósar og léttar gardínur og smekklegir skrautmunir gerðu rýmið að fallegu opnu eldhúsi og stofu.

„Ég var ekki að búast við þessu,“ viðurkenndi Telma þegar hún sá stofuna eftir breytingar. Bæði voru þau hálf kjaftstopp.
„Þetta fór langt fram úr vonum allavega,“ sagði Almar.

„Vá hvað ég er glöð,“ sagði Telma.
„Þetta er örugglega sætasta stofa sem ég hef farið í á ævi minni.“

„Við ætluðum að snúa þessu öllu allt öðruvísi sem hefði nýst miklu verr. Síðan kom Soffía og eiginlega bjargaði þessu,“ sagði Almar um breytingarnar á heimilinu.

„Ég verð að viðurkenna að þetta var eitt af þeim meira krefjandi en það gerir þetta bara meira eftirminnilegra og skemmtilegra,“ sagði Soffía sátt í lokin.

Í ítarlegri bloggfærslu á síðunni Skreytum hús er hægt að finna frekari upplýsingar um breytingarnar og þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta eigninni.


Hægt er að sjá breytinguna og horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þættirnir eru sýndir á miðvikudögum hér á Vísi og fara samhliða því inn á Stöð 2+.