Lífið

Sveppi reyndi fyrir sér í uppistandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sveppi fór á kostum. 
Sveppi fór á kostum. 

Þátturinn Stóra sviðið er fjölskylduþáttur þar sem skemmtun og afþreying eru í aðalhlutverki.

Steinunn Ólína leggur fyrir þá Auðunn Blöndal og Steinda Jr., fyndnar og fjölbreyttar áskoranir í hverjum þætti.

Í þættinum á föstudaginn mættu þeir Sveppi og Ari Eldjárn sem gestaþátttakendur en Sveppi var að sjálfsögðu með Audda í liði og Ari með Steinda.

Áskorun kvöldsins fólst meðal annars í því að talsetja og framleiða stuttteiknimynd, endurgera frægt atriði úr kvikmyndasögunni og fara með uppistand.

Ari Eldjárn fór að sjálfsögðu með uppistand fyrir hönd síns liðs en það kom í hlut Sveppa að flytja uppistand fyrir hitt liðið.

Sveppi þótti standa sig nokkuð vel og sagði eftir uppistandið að þetta hafi verið eitt það erfiðasta sem hann hefði gert á ferlinum.

Hér að neðan má sjá hvernig til tókst.

Klippa: Sveppi reyndi fyrir sér í uppistandi





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.