Emma, sem vann áður hjá lögmannsstofunni K&L Gates, LOGOS í London og JWW í Manchester, er sögð hafa yfirgripsmikla reynslu af lögfræðiráðgjöf fyrirtækja, samrunum, kaupum og sölu fyrirtækja, meðal annars sprota- og frumkvöðlafyrirtækja.
Í tilkynningu segir að með ráðningunni verði alþjóðlegt teymi BBA//Fjeldco öflugra og muni gera stofuna að skýrum fyrsta valkosti við val á ráðgjafa í verkefnum sem tengjast viðskiptum milli Íslands og Bretland, sem og öðrum alþjóðlegum verkefnum.
Auk Emmu starfa nú á skrifstofunni í London enski lögmaðurinn Claire Broomhead, sem hefur yfir 20 ára starfsreynslu, Gunnar Þór Þórarinsson, sem hefur einnig 20 ára starfsreynslu og er með bæði íslensk og ensk lögmannsréttindi, og lögmaðurinn Anna Björg Guðjónsdóttir sem hefur unnið á skrifstofu félagsins í Reykjavík frá 2013.
Lögmannsstofurnar BBA og Fjeldsted & Blöndal sameinuðust haustið 2019 undir nafninu BBA//Fjeldco en samtals eru um 30 starfsmenn hjá félaginu. Á fyrsta heila rekstrarári stofunnar í fyrra nam hagnaðurinn tæplega 300 milljónum.
Fimm stærstu eigendur BBA//Fjelco eiga um 16,5 prósenta hlut hver. Það eru þeir Halldór Karl Halldórsson, Baldvin Björn Haraldsson, Þórir Júlíusson, Gunnar Þór og Einar Baldvin Árnason. Hlutdeild hvers í hagnaði lögmannsstofunnar nam því um 50 milljónum króna.