Bílar

Hyundai með flestar nýskráningar í nóvember

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Framendinn á nýjum Tucson N Line.
Framendinn á nýjum Tucson N Line.

Flest nýskráð ökutæki í nóvember voru af Hyundai gerð. Nýskráð voru 194 ökutæki af Hyundai gerð í nóvember. Það er annar mánuðurinn í röð sem Hyundai er á toppnum. Næst á eftir Hyundai kemur Kia með 95 nýskráningar og svo Toyota í þriðja sæti með 91 nýskráningu. Þetta kemur fram í tölum á veg Samgöngustofu.

Undirtegundir

Hyundai Tucson var mest nýskráða undirtegundin í nóvember með 81 eintak nýskráð. Peugeot 2008 var með næst flestar nýskráningar með 40 eintök og svo Tesla Model Y í þriðja sæti með 37 eintök.

Tucson er annan mánuðinn í röð á toppnum. Stutt er síðan ný kynslóð var kynnt til sögunnar. Tölurnar benda til þess að sá bíll sé að falla vel í kramið.

Með ramtakinu er ætlun fyrirtækisins að auðvelda rafbílaeigendum að ferðast um landið en til þessa hefur það verið illmögulegt vegna fárra hleðslustöðva á landinu.Vísir/Getty

Orkugjafar

Rafmagn var algengasti orkugjafi nýskráðra ökutækja í nóvember. Alls voru 406 nýskráðir hreinir rafbílar í mánuðinum. Bensín tengiltvinnbílar voru í öðru sæti með 287 eintök nýskráð og dísel bílar voru í þriðja sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×