Þrjár af fyndnustu gæludýramyndum ársins.ANIMAL FRIENDS COMEDY PET PHOTO AWARDS
Fyndnasta gæludýramynd ársins er mynd sem Zoe Ross tók af hvolpinum Pepper. Myndin ber heitið „Whizz Pop“ og virðist sýna sápukúlu koma út úr afturenda Pepper.
Comedy Pet Photo Awards eru haldin árlega og er þeim ætlað að vekja athygli á dýravernd og safna peningum fyrir dýraverndarsamtök.
Sömu aðilar halda utan um Comedy Wildlife Photography Awards en í fyndnasta myndin þeirri keppni var opinberuð í síðasta mánuði.
Rúmlega tvö þúsund myndir bárust í gæludýrakeppnina þetta árið en þær fjörutíu myndir sem kepptu til úrslita voru opinberaðar í september.
Í tilkynningu er haft eftir meðlimum dómnefndarinnar að myndin af Pepper hafi strax vakið athygli þeirra enda sé hún mjög kostuleg.
Auk myndarinnar af Pepper unnu fleiri myndir verðlaun í mismunandi flokkum. Þær myndir má sjá hér að neðan.
Hvolpurinn Pepper virðist hér hafa borðað eitthvað sem hún átti ekki að borða. Þetta er fyndnasta gæludýramynd ársins.Zoe Ross/Animal Friends Comedy Pet Photo AwardsClementine hefur gaman að því þegar verið er að vökva. Of gaman, myndi einhver segja.Carmen Cromer/Animal Friends Comedy Pet Photo AwardsJeff stelur athyglinni af Jaffa. Þessi mynd vann í flokki kattamynda.Kathryn Trott/Animal Friends Comedy Pet Photo AwardsSum dýr eru með betra skopskyn en önnur. Þessi mynd vann í flokki hestamynda.Mary Ellis/Animal Friends Comedy Pet Photo AwardsHænuungar átta sig ekki alveg á því hvað skuggar eru. Þessi mynd vann í flokki mynda yfir aðrar tegundir dýra.Sophie Bonnefoi/ANIMAL FRIENDS COMEDY PET PHOTO AWARDSBeau er mjög hlýðinn hundur og þegar honum er sagt að setjast, þá sest hann. Sama hvað eða hver er í vegi hans. Þessi mynd vann í flokki mynda af börnum.Suzi Lonergan/ANIMAL FRIENDS COMEDY PET PHOTO AWARDSSvei mér þá ef það er ekki svipur með þeim. Þessi mynd vann í flokki mynda af dýrum sem líta út eins og eigendur þeirra.Jakub Gojda/ANIMAL FRIENDS COMEDY PET PHOTO AWARDS
Hér má sjá þrjú stutt myndbönd sem send voru í keppnina. Það fyrsta var valið fyndnast.
Hér að neðan má svo sjá nokkrar myndir sem unnu ekki til verðlauna en dómnefndinni þótti góðar.
Hugo er frekur á athyglina.Chloe Beck/Animal Friends Comedy Pet Photo AwardsFrábært dúó.Luke O'Brien/ANIMAL FRIENDS COMEDY PET PHOTO AWARDSKötturinn Bllue virðist hafa farið fram úr sér í drykkjunni.Kathryn Clark/ANIMAL FRIENDS COMEDY PET PHOTO AWARDSHún Leia er að leita sér hjálpar vegna skapofsans.Diana Jill Mehner/Animal Friends Comedy Pet Photo AwardsHundarnir Star og Will eiga í basli með að fá bolta þeirra til baka frá þessari skringilegu styttu.HRISTINE JOHNSON/ANIMAL FRIENDS COMEDY PET PHOTO AWARDSÞetta er hinn undarlegasti strútur.Manel Subirats Ferrer/Animal Friends Comedy Pet Photo AwardsVið þekkjum mörg hvernig það er að eiga svona nágranna.Colin Doyle/ANIMAL FRIENDS COMEDY PET PHOTO AWARDSÞetta virðist hafa verið algert rúst.Corey Seeman/Animal Friends Comedy Pet Photo AwardsÞessi bandaríski köttur er nokkuð óhefðbundinn. Uppreisnarköttur sem fylgir ekki í fótspor annarra og situr eins og honum sýnist.Lucy Slater/Animal Friends Comedy Pet Photo AwardsÞað eru alltaf einhverjir sem geta ómögulega verið eðlilegir á mynd.Mollie Cheary/ANIMAL FRIENDS COMEDY PET PHOTO AWARDS