Mjótt á munum hvort úrkoman falli í föstu eða fljótandi formi Atli Ísleifsson skrifar 14. desember 2021 07:10 Á morgun og fimmtudag bætir frekar í suðlægar áttir með úrkomu um landið sunnan- og vestanvert. Vísir/Vilhelm Spáð er suðvestlægri átt í dag og skúrum eða éljum um landið sunnan- og vestanvert. Fyrir norðan byrjar dagurinn á austan strekkingi og snjókomu eða slyddu en fljótlega eftir hádegi snýst einnig í suðvestlæga átt þar og rofar til, einkum á Norðausturlandi.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að hiti sé víðast hvar á bilinu núll til fimm stig og verði oft mjótt á munum hvort úrkoman falli í föstu eða fljótandi formi. Á morgun og fimmtudag bætir frekar í suðlægar áttir með úrkomu um landið sunnan- og vestanvert, en þurrt um landið austanvert. Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðvestan 10-18 m/s og skúrir eða él, en bjartviðri austanlands. Dregur úr vindi sunnantil um kvöldið. Hiti 0 til 5 stig. Á fimmtudag: Gengur í allhvassa eða hvassa sunnanátt með rigningu eða súld, en þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 3 til 10 stig. Á föstudag: Minnkandi suðvestan- og sunnanátt og dálitlir skúrir eða slydduél, en þurrt norðaustantil á landinu. Hiti 2 til 7 stig. Á laugardag: Suðvestlæg eða breytileg átt og væta með köflum, en þurrt að mestu á Norður- og Austurlandi. Kólnar í veðri. Á sunnudag: Austlæg átt og rigning með suðurströndinni, annars þurrt. Hiti um og yfir frostmarki sunnan- og vestanlands, en frost norðaustantil. Á mánudag: Útlit fyrir suðaustlæga átt og þurrt að kalla. Hlýnar heldur.
Veður Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Skotmennirnir feðgar Erlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Fleiri fréttir Lægðin á undanhaldi Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Vara við flughálku í fyrramálið Skúrir á víð og dreif og hiti að sex stigum Hefðbundin lægð með rigningu og allhvössum vindi Hvít jörð á höfuðborgarsvæðinu og víðar Frost og víða fallegt vetrarveður Sjá meira