Lífið

Hin sautján ára Þórdís Linda fór á kostum á Stöð 2 í gærkvöldi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þórdís flutti lagið einstaklega vel.
Þórdís flutti lagið einstaklega vel.

Sóli Hólm og Eva Laufey stigu á stokk í sérstökum jólaskemmtiþætti á Stöð 2 í gær sem gekk undir nafninu Vertu með okkur um jólin.

Um var að ræða tónlistarveislu þar sem kertaljós og kósý stemming var í fyrirrúmi. Einvalalið tónlistarfólks fluttu klassísk og vinsæl jólalög í bland við ný. Davíð Sigurgeirsson stýrði hljómsveit og 30 manna gospelkór Jóns Vídalíns var á svæðinu listamönnunum til halds og trausts.

Hin 17 ára Þórdís Linda Þórðardóttir flutti lagið fallega Allt það sem ég óska mér í þættinum í gær.

Þórdís vann söngvakeppni Samfés árið 2020 og vakti flutningur hennar mikla athygli á Stöð 2 í gær.

Klippa: Þórdís Linda - Allt sem ég óska mér





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.