Viðskipti innlent

Maríanna ráðin leið­togi breytinga hjá Lands­neti

Atli Ísleifsson skrifar
Maríanna Magnúsdóttir. 
Maríanna Magnúsdóttir.  Landsnet

Maríanna Magnúsdóttir hefur verið ráðin leiðtogi breytinga hjá Landsneti.

Í tilkynningu segir að Maríanna sé með „fjölbreytta reynslu á sviði umbreytinga og reynslu af því að setja fókus á að þróa fólk, byggja upp skilvirk og hamingjusöm teymi með því að skapa vinnuumhverfi og menningu þar sem mannauður blómstrar.“

Hún er rekstrarverkfræðingur með M.Sc. gráðu frá HR, hefur áratuga ára reynslu í Lean aðferðafræðinni og innleiðingu á stefnu fyrirtækja, tekið PMD stjórnendanám og lokið grunn- og framhaldsnámi í markþjálfun.

„Síðastliðin 11 ár hefur hún starfað sem breytingaafl m.a. sem forstöðumaður umbótastofu hjá VÍS, umbreytingaþjálfari hjá Manino, stjórnarkona FKA Framtíðar og breytingaleiðtogi hjá Reykjavíkurborg,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Guðmundi Inga Ásmundssyni, forstjóra Landsnets, að starfsmenn Landsnets starfi í umhverfi sem sé sífellt að breytast og standi þeir nú frammi fyrir nýjum og spennandi áskorunum. „Breytingarnar eru hraðar og við viljum fylgja þeim eftir með því að þróa lausna- og árangursmiðaða menningu hjá okkur. Leiðtogi breytinga er nýtt starf hjá fyrirtækinu og mun gera okkur kleift að mæta áskorunum framtíðarinnar. Maríanna hefur reynslu af nýstárlegum stjórnunaraðferðum sem efla leiðtogahæfni. Það verður spennandi að fara þessa vegferð með henni.”

Þá er haft eftir Maríönnu að það séu forréttindi að tilheyra mögnuðum mannauði Landsnets. „Landsnet er að stíga öflugt framþróunarskref sem ég trúi að muni skila árangri ásamt því að vekja mikla athygli. Fleiri vinnustaðir munu vilja taka sambærileg skref.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×