Heilsa

Hreyfum okkur saman: Styrkur og liðleiki

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Anna Eiríksdóttir þjálfari er þáttastjórnandi Hreyfum okkur saman.
Anna Eiríksdóttir þjálfari er þáttastjórnandi Hreyfum okkur saman. Vísir/Saga Sig

Anna Eiríksdóttir fór af stað með nýja þætti hér á Lífinu á Vísi í dag. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á Stöð 2+ efnisveitunni. Um er að ræða heimaæfingar sem allir geta gert þar sem þeim hentar. Þættirnir koma út tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum.

Anna Eiríks er reynslumikill þjálfari og starfar sem deildarstjóri í Hreyfingu. Fyrsti þátturinn inniheldur styrkjandi og liðkandi æfingar sem mynda mikinn bruna í vöðvunum, þjálfa styrk, liðleika og auka vöðvaþolið. 

Einu áhöldin sem þarf í þessa heimaæfingu eru stóll og dýna. Anna velur sjálf að vera berfætt en fólk getur að sjálfsögðu valið að gera æfinguna í skóm. Æfingin er í heildina um fimmtán mínútur en þeir sem vilja meiri áskorun geta gert hana oftar en einu sinni. 

Hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.