Bingóstjórar eru Auddi og Steindi og lofa þeir miklu fjöri. Allir geta horft á útsendinguna en til þess að fá bingóspjöld þarf að gerast áskrifandi að hlaðvarpi þeirra félaga, Blökastinu. Það er gert með því að fara á fm95blo.is, gerast áskrifandi og smella svo á rauða bingótakkann.
Uppfært: Bingóið er búið en hægt er að horfa á upptöku af því hér fyrir neðan. Neðst í fréttinni má horfa á tónlistaratriðin með Sverri Bergmann, Jóhönnu Guðrúnu og Halldóri Gunnari Pálssyni.
Svakalegir vinningar
Fjöldi veglegra vinninga eru í boði fyrir þá sem eru svo heppnir að fá bingó. Þá helstu má sjá hér fyrir neðan.
- Hundrað þúsund krónur frá Icelandair
- Playstation 5 tölva
- Samsung sími
- Úlpa frá 66°Norður
- Gleðikrónur Gleðipinna
- Gisting í Greenhouse Hotel
- Fjarþjálfun
- Töflur við brjósklosi
- Gamalt gos
Svona virkar þetta
Áskrifendur Blökastsins fá aðgang að hlekk með bingóinu og getur hver fjölskyldumeðlimur sótt sér þrjú spjöld. Þeir sem vilja taka þátt fara á hlekkinn, skrifa fullt nafn og slá inn símanúmer. Síðan skrá þeir sig inn með tölunum sem sendar eru með smáskilaboðum í það símanúmer. Þá eru spjöldin orðin virk.
Athugið að spjöldum er úthlutað á símanúmer, hægt er að skrá sama símanúmer í fleiri en eitt tæki en þá koma sömu spjöld. Tækin muna eftir innskráningunni þannig að hægt er að fara af síðunni og koma aftur. Hægt er að sækja spjöld með öllum símanúmerum.
Ýttu á Bingó-takkann
Síðan er um að gera að fylgjast vandlega með því þegar strákarnir draga út tölurnar. Ef þú skyldir fá bingó áttu að ýta á Bingó-takkann neðst á spjaldinu um leið. Ef þú ert í stuði er gott að kalla líka „BINGÓ!“
Eins og áður sagði má finna nánari upplýsingar á vef Tals hér á Vísi.