Matur

Eldað af ást: Kálfakjöt með heimagerðu pestói

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ástríðukokkurinn Kristín Björk er þáttastjórnandi Eldað af ást.
Ástríðukokkurinn Kristín Björk er þáttastjórnandi Eldað af ást. Eldað af ást

Eldað af ást er nýr matreiðsluþáttur hér á Vísi. Þáttastjórnandinn er matgæðingurinn Kristín Björk. Þriðja máltíðin sem hún sýnir er kálfakjöt með heimagerðu pestói og meðlæti.

Kristín Björk heldur úti skemmtilegri Instagram síðu en þættirnir hennar munu birtast vikulega hér á Vísi. Hægt er að horfa á fyrstu þættina HÉR

„Bóndadagurinn nálgast og fátt betra en að dekra við strákana í lífi okkar. Í dag ætlum við að elda kálfaribeye með heimagerðu pestói, bökuðum hvítlauk, aspasi og kartöflum,“ segir Kristín Björk.

Þáttinn má sjá í spilaranum en uppskriftina má svo finna neðar í fréttinni.

Klippa: Eldað af ást - Kálfakjöt

Uppskriftir:

Pestó:

  • Heil baskiliku planta
  • Hnefafylli af kasjuhnetum
  • Hnefafylli parmesan ostur
  • Ólífuolía
  • Salt
  • Pipar.

Setja allt í blandara, grófmylja, salta og pipra eftir smekk

Bakaður hvítlaukur:

  • Skera "toppinn" af hvítlauknum
  • Olía
  • Salt
  • pipar
  • setja inn í ofn með kjötinu

Hasselback kartöflur:

  • Forsjóða kartöflur í saltvatni
  • Skera í þær rendur
  • Ólífuolía
  • Salt
  • Pipar
  • Setja inn í ofn með kjöti

Kjötið:

  • Loka kjötinu á sjóðandi heitri pönnu, u.þ.b tvær mínútur á hvorri hlið
  • Elda á 180 í 8-10 mínútur, fer eftir þykkt kjötsins.
  • Kjarnhiti fyrir medium rare á að vera 56 gráður

Aspas:

  • Á meðan kjötið er að malla í ofninum þá steikjum við aspas upp úr smjöri á heitri pönnu. 
  • Gott að kreista svolitila sítrónu eða limesafa yfir aspasinn þegar hann er tilbúinn.

Vassegú, voilá og góðar stundir.


Tengdar fréttir

Ástríðukokkur sem á margt eftir ólært

„Eldað af ást eru örþættir sem eru ætlaðir öllum matgæðingum,“ segir Kristín Björk Þorvaldsdóttir þáttastjórnandi Eldað af ást sem fóru af stað hér á Lífinu á Vísi fyrir jólin. Kristín Björk er matgæðingur, matarbloggari og flugfreyja.

Eldað af ást: Matmikið andasalat sem er létt í maga

Eldað af ást er nýr matreiðsluþáttur hér á Vísi. Þáttastjórnandinn er matgæðingurinn Kristín Björk og önnur uppskriftin sem hún sýnir er andasalat sem er fullkomið eftir þungar hátíðarmáltíðir síðustu daga. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.