Lífið

Frikki Dór: Þriggja dætra faðir og ný plata á leiðinni

Elísabet Hanna Maríudóttir skrifar
Frikki Dór ásamt dætrum sínum.
Frikki Dór ásamt dætrum sínum. Samsett/Instagram

Stórsöngvarinn Friðrik Dór Jónsson og eiginkona hans Lísa Hafliðadóttir hafa tekið á móti þriðju dóttur sinni og er einnig ný plata frá honum væntanleg á miðnætti.

Frikki tilkynnti á samfélagsmiðlum um komu dóttur sinnar og er fjölskyldan þá orðin fimm manna en fyrir eiga hjónin dæturnar Ásthildi og Úlfhildi. Friðrik lét stórtíðindin ekki stoppa þar heldur tilkynnti hann einnig væntanlega plötu sína sem ber heitið DÆTUR og mun koma út á miðnætti í kvöld. 

Hann hefur ekki þurft að leita lengra en til ríkidæmisins sem hjónin eiga til þess að fá innblástur að nafni plötunnar. Hún inniheldur níu lög og fékk elsta dóttir þeirra að taka þátt í sköpunarferlinu og skrifa titilinn DÆTUR á plötuna.


Tengdar fréttir

Frikki Dór og Lísa eiga von á þriðja barninu

Söngvarinn Friðrik Dór Jónsson og Lísa Hafliðadóttir eiginkona hans eiga von á barni. Eiga þau von á stúlku en fyrir eiga þau dæturnar Ásthildi og Úlfhildi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.