Í hröðum vexti og horfa hýru auga til háskólanema Rakel Sveinsdóttir skrifar 3. febrúar 2022 07:01 Ásdís Eir Símonardóttir, VP of People and Culture hjá Lucinity, segir fyrirtækið horfa með hýru auga til frekara samstarfs við háskólanema. Lucinity framleiðir gervigreindarhugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum að berjast gegn peningaþvætti. Vísir/Vilhelm „Við höfum fengið háskólanema til okkar sem hafa unnið lokaverkefni sín í samstarfi við okkar starfsfólk, og slík samvinna hefur leitt til sumarstarfa og fastráðninga,“ segir Ásdís Eir Símonardóttir sem dæmi um það hversu gjöfult það getur verið að efla tengsl og samvinnu á milli háskólasamfélagsins og atvinnulífs.
Ásdís Eir er mannauðstjóri nýsköpunarfyrirtækisins Lucinity (e. VP of People & Culture) en hún starfaði áður sem mannauðsleiðtogi hjá OR. Ásdís er jafnframt formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi. „Ég held að flest, ef ekki öll fyrirtæki ættu að skoða ávinninginn sem hlýst af góðu samstarfi við háskólana,“ segir Ásdís. Í gær og í dag fjallar Atvinnulífið um Atvinnudaga HÍ sem nú eru haldnir í sjötta sinn og standa yfir til 4.febrúar. Markmið Atvinnudaga er að undirbúa nemendur í þátttöku á vinnumarkaði en þessi viðburðarvika er stafræn. Spennandi fyrirtæki horfir til háskólanema Þótt Lucinity sé rétt ríflega þriggja ára gamalt nýsköpunarfyrirtæki, starfa þar nú þegar tæplega fimmtíu manns. Þar af nokkrir starfsmenn sem upphaflega kynntust fyrirtækinu þegar þeir unnu lokaverkefnin sín í háskólanum. Lucinity framleiðir gervigreindarhugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum að berjast gegn peningaþvætti. Stærsti hluti starfsmanna er staðsettur á Íslandi en fyrirtækið starfar þó á alþjóðavettvangi. Og horfir nú þegar hýru auga til háskólanema. Ásdís var til dæmis meðal þeirra sem tóku þátt í pallborðsumræðum á Atvinnudögum HÍ í gær. Ásdís segir líklegt að Lucinity sé einn þeirra vinnustaða sem munu í auknum mæli horfa til samstarfs við háskólanema. Til dæmis með þátttöku í Atvinnudögum. „Hingað til höfum við ekki nýtt okkur Atvinnudaga markvisst, en við horfum hýru auga til þeirra, enda frábær vettvangur til að tengja saman háskólanema og atvinnulífið.“ Ásdís segir líka mikinn ávinning geta falist í samstarfi við háskólanema. Háskólanemar eru með puttann á púlsinum varðandi það nýjasta sem er að gerast í faginu, eru hugmyndaríkir og óhræddir við að prófa nýja hluti sem hristir upp í reynsluboltum á góðan hátt. Þá segir Ásdís tilvalið fyrir fyrirtæki sem eru í mikilli uppbyggingu, að skoða samstarf við nemendur í háskólanum. Það sé hægt að gera með alls kyns verkefnavinnu en eins sé samstarf sem þetta eitthvað sem gefur á báða bóga. „Háskólanemar og nýútskrifað fólk nýtur auðvitað góðs af því að vinna með reynslumeira fólki, en það er ekki síður þannig að reynsluboltar fá líka mjög mikið út úr þannig samstarfi.“ Ásdís segir margt gott og gefandi geta komið út úr því að starfsfólk og háskólanemar starfi saman. Það sé faglega hvetjandi fyrir reynslumeira starfsfólk og gefandi fyrir það að starfa með nemum sem oft eru með puttann á púlsinum og ferskar hugmyndir.Vísir/Vilhelm Samstarfið getur stuðlað að fjölbreytileika Ásdís segir Lucinity vera ungt nýsköpunarfyrirtæki í mikilli uppbyggingu og þar vanti alltaf fólk með alls konar hæfni og færni. Lucinity sé þannig dæmigerður vinnustaður sem horfir til háskólasamfélagsins. Reynsla Ásdísar sé þó sú, að samstarf við háskólanema sé gjöfult fyrir bæði ung fyrirtæki að hasla sér völl sem og rótgróna vinnustaði. Það þekki hún frá starfi sínu hjá OR áður. Það er mjög faglega hvetjandi fyrir fólk sem er komið með reynslu að fá að miðla henni til reynsluminna fólks sem er sólgið í að læra og bæta við sig þekkingu.“ Þá segir Ásdís fjölbreytileika vera atriði sem mikilvægt er að vinnustaðir horfi til. Að hennar mati, getur samstarf atvinnulífs og háskólasamfélags stuðlað að þessum fjölbreytileika. „Við vitum að ólíkur bakgrunnur samstarfsfólks, bæði hvað varðar kyn, aldur, uppruna og annan bakgrunn, skilar sér í betri ákvörðunartöku og árangri. Fjölbreytileiki ætti að vera keppikefli fyrir öll fyrirtæki.“
Skóla - og menntamál Nýsköpun Tækni Starfsframi Vinnumarkaður Vinnustaðurinn Mannauðsmál Tengdar fréttir „Ég hef óbilandi trú á komandi kynslóðum“ „Þetta er bara áhættustýring 101“ segir Ásthildur Otharsdóttir meðal annars um hvers vegna fjármagn á að stuðla að sjálfbærri framtíð. 27. janúar 2022 07:00 „Einstaklingar gera orðið meiri kröfur til vinnustaða og stjórnenda“ Herdís Pála Pálsdóttir, stjórnunar- og stjórnendaráðgjafi, segir strauma og stefnur í mannauðsmálum 2022 samanstanda af kunnuglegum atriðum, áherslum tengdum heimsfaraldri en líka ýmsu nýju. 14. janúar 2022 07:01 Vaxandi velgengni: „Við erum bara svo góðir vinir“ Þrátt fyrir heimsfaraldur birtust jákvæðar fréttir af fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum árið 2021. Ekki síst fyrirtækjum á sviði nýsköpunar. 2. janúar 2022 08:01 Einstakt að hafa starfað með stofnanda Össurar hf. „Það var einstakt að fá að vinna með stofnanda Rafnar, Össuri Kristinssyni. Hann er sá sami og stofnaði Össur hf. og er mín fyrirmynd sem uppfinningamaður,“ segir Svavar Konráðsson vélaverkfræðingur en þrátt fyrir að vera aðeins 33 ára gamall, hefur Svavar verið nokkuð áberandi í frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi. 29. nóvember 2021 07:01 „What the hell is wrong with your country?" spurði lögfræðingurinn Ævintýri sprota sem hófst skömmu eftir bankahrun. 8. nóvember 2021 07:00 Mest lesið „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó „Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Betra en ekki að viðurkenna mistökin Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki Hafa þróað kerfi til að auka á gagnsæi viðskipta með kolefniseiningar „Hef ítrekað verið ásakaður af eiginkonunni að vera morgunfúll“ Óöryggi, feimni og jafnvel einmanaleiki í nýju sumarvinnunni Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Níu manns sagt upp hjá Veitum Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Að sækja um starf eftir uppsögn Hefur óeðlilega þörf fyrir að strauja allt frá skyrtum í barnasamfellur Að standa upp til að gera eitthvað og muna síðan ekkert hvað það var „Orðið var við aukna umræðu um að vinnan eigi ekki að valda álagi“ Ekkert einkamál: Áhrif vinnustaða á geðheilsu jafn stór og makans „Þú varst aumingi ef þú fórst á hausinn en glæpamaður ef þú græddir“ „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Sjá meira
„Ég hef óbilandi trú á komandi kynslóðum“ „Þetta er bara áhættustýring 101“ segir Ásthildur Otharsdóttir meðal annars um hvers vegna fjármagn á að stuðla að sjálfbærri framtíð. 27. janúar 2022 07:00
„Einstaklingar gera orðið meiri kröfur til vinnustaða og stjórnenda“ Herdís Pála Pálsdóttir, stjórnunar- og stjórnendaráðgjafi, segir strauma og stefnur í mannauðsmálum 2022 samanstanda af kunnuglegum atriðum, áherslum tengdum heimsfaraldri en líka ýmsu nýju. 14. janúar 2022 07:01
Vaxandi velgengni: „Við erum bara svo góðir vinir“ Þrátt fyrir heimsfaraldur birtust jákvæðar fréttir af fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum árið 2021. Ekki síst fyrirtækjum á sviði nýsköpunar. 2. janúar 2022 08:01
Einstakt að hafa starfað með stofnanda Össurar hf. „Það var einstakt að fá að vinna með stofnanda Rafnar, Össuri Kristinssyni. Hann er sá sami og stofnaði Össur hf. og er mín fyrirmynd sem uppfinningamaður,“ segir Svavar Konráðsson vélaverkfræðingur en þrátt fyrir að vera aðeins 33 ára gamall, hefur Svavar verið nokkuð áberandi í frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi. 29. nóvember 2021 07:01
„What the hell is wrong with your country?" spurði lögfræðingurinn Ævintýri sprota sem hófst skömmu eftir bankahrun. 8. nóvember 2021 07:00