Lífið

Afhjúpa lögin tíu annað kvöld

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá Söngvakeppninni á síðasta ári.
Frá Söngvakeppninni á síðasta ári. RÚV

Lögin í Söngvakeppninni 2022 verða afhjúpuð í sérstökum sjónvarpsþætti annað kvöld á RÚV. Í þættinum verður fjallað um höfunda og flytjendur laganna og spiluð brot úr þeim.

RÚV hefur gefið nokkrar vísbendingar á Instagram síðasta sólarhringinn og í umræðuhópum á Facebook hefur fólk leikið sér að því að giska á nöfn flytjanda. Hafa verið nefndir listamenn á borð við Suncity (Sólborgu Guðbrandsdóttur) og Haffa Haff, út frá myndunum sem sjá má hér fyrir neðan.

Skjáskot af nokkrum af vísbendingum RÚV á Instagram.Skjáskot/Instagram

Nú þegar hefur komið fram hér á Vísi að hljómsveitin Reykjavíkurdætur eigi eitt af lögunum tíu sem kynnt verður annað kvöld.  Vildu meðlimir hljómsveitarinnar þó ekki staðfesta þetta í samtali við fréttastofu, sem hafði þessar upplýsingar eftir öruggum heimildum.

Mikið leynd hefur hvílt yfir flytjendum laganna tíu en framkvæmdastjórn keppninnar segir að þar megi finna reynslumikla lagahöfunda, þekkta flytjendur, vonarstjörnur og verðlaunahafa á sviði tónlistar.

Tíu lög keppa um farmiðann til Tórínó þar sem Eurovision keppnin verður haldin í maí. Tvær undankeppnir fara fram hér á landi dagana 26. febrúar og 5. mars í Söngvakeppnishöllinni svokölluðu í Gufunesi. 

Úrslitin ráðast svo laugardaginn 12. mars. Ísland mun keppa í fyrri undankeppninni, sem fer fram þann 10. maí. MIKA er einn kynnir keppninnar í ár.

RÚV kynnir á morgun atriðin tíu sem keppast um að keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision á þessu ári.RÚV

Tengdar fréttir

MIKA kynnir Eurovision í ár

Breski söngvarinn MIKA sem gerði garðinn frægan með laginu Grace Kelly verður einn af kynnum Eurovision hátíðarinnar 2022. Ásamt honum verða ítalska söngkonan Laura Pausini og ítalski þáttastjórnandinn Alessandro Cattelan kynnar en keppnin fer fram á Ítalíu.

Ísland mun keppa í fyrri undankeppni Eurovision

Það er komið í ljós að Ísland muni taka þátt í fyrri undankeppni Eurovision þann 10. maí í Tórínó. Atriði Íslands mun stíga á svið seinnihluta kvöldsins og alls keppa átján lönd í fyrri undankeppninni.

Ísland mun keppa í fyrri undankeppni Eurovision

Það er komið í ljós að Ísland muni taka þátt í fyrri undankeppni Eurovision þann 10. maí í Tórínó. Atriði Íslands mun stíga á svið seinnihluta kvöldsins og alls keppa átján lönd í fyrri undankeppninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.