Lífið

Stað­festir ekkert um lekann: „Opnar maður ekki jóla­pakkann á að­fanga­dag?“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Ragnhildur Steinunn er ein þeirra sem kemur að skipulagningu Söngvakeppninnar. Hún gefur ekkert upp um lögin í keppninni, sem verða opinberlega afhjúpuð í kvöld.
Ragnhildur Steinunn er ein þeirra sem kemur að skipulagningu Söngvakeppninnar. Hún gefur ekkert upp um lögin í keppninni, sem verða opinberlega afhjúpuð í kvöld. Vísir/Samsett

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, sjónvarpskona og einn skipuleggjenda Söngvakeppni Sjónvarpsins, hvetur fólk til þess að fylgjast með sérstökum kynningarþætti fyrir keppnina í kvöld, þar sem til stendur að afhjúpa þau lög sem keppast um að verða framlag Íslands til Eurovision í ár. Fyrr í dag var greint frá því að lögunum í keppninni hefði verið lekið.

„Ég segi bara: Fylgist með sjónvarpinu í kvöld og þá fáið þið staðfestingu á því hvaða lög verða í keppninni,“ segir Ragnhildur Steinunn í samtali við fréttastofu og vill ekkert gefa upp um sannleiksgildi lekans, sem birtist á vefsíðunni Eurovision Fun.

„Opnar maður ekki jólapakkann á aðfangadag? Ég segi ekki meira.“

Áður hafði verið greint frá því að Reykjavíkurdætur tækju þátt í keppninni, en Ragnhildur segir ekkert hafa verið staðfest. Þetta komi allt saman í ljós í kvöld.

„Ekki búið að staðfesta neitt heldur með það. Ég opna bara alltaf jólapakkana á aðfangadag og gægist ekki í skápana á Þorláksmessu.“

Ragnhildur segist telja ærna ástæðu fyrir landsmenn til að poppa, setjast niður fyrir framan sjónvarpið í kvöld og hafa gaman saman.

Segir ekkert um lekann 2018

Sams konar leki um framlög í Söngvakeppninni varð árið 2018, þegar listi yfir lög og flytjendur var birtur árið 2018.

Aðspurð um hvernig sá leki hefði komið til sagðist Ragnhildur ekki vilja tjá sig um það, en ítrekaði að ekkert lægi fyrir um hvort lekinn í ár sýndi rétta mynd af framlögum í keppninni að þessu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.