Samstarf

Yfirmenn Heimkaups keyra út í dag

Heimkaup
Thelma Björk Wilson framkvæmdastjóri þjónustu og notendaupplifunar Heimkaups hendist með heimsendingar eftir óveðrið í morgun.
Thelma Björk Wilson framkvæmdastjóri þjónustu og notendaupplifunar Heimkaups hendist með heimsendingar eftir óveðrið í morgun. Andri Thorstensen

Starfsfólk Heimkaups hefur vitanlega ekki farið varhluta af því aftakaveðri sem nú gengur yfir landið. 

Til að létta undir með þeim sem alla jafna sjá um útkeyrslu hjá Heimkaup hafa aðrir starfsmenn, s.s. yfirmenn og þeir sem jafnan gegna störfum á skrifstofu fyrirtækisins, brugðið á það ráð að taka þátt í að keyra út vörur.

Viðskiptavinir Heimkaups geta því alveg eins átt von á heimsókn frá framkvæmdastjóranum eða netsérfræðingi fyrirtækisins í dag. Á þessari mynd er Thelma Björk Wilson framkvæmdastjóri þjónustu og notendaupplifunar að fara með sendingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×