Lífið

Berglind Festival selur risíbúðina

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Berglind Festival hefur gert mikið fyrir íbúðina, meðal annars var eldhúsið tekið í gegn nýlega.
Berglind Festival hefur gert mikið fyrir íbúðina, meðal annars var eldhúsið tekið í gegn nýlega. Samsett

Fjölmiðlakonan Berglind Pétursdóttir, oft kölluð Berglind Festival, er að selja íbúðina sína á Njálsgötu. Íbúðin er ótrúlega litrík og þar setja skrautlegar flísar sterkan svip.

Samkvæmt Fasteignavef Vísis er risíbúðin skráð 74.5 fermetrar og uppsett verð er 59.900.000. Íbúðin skiptist í bjart og rúmgott alrými, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Úr setustofu er útsýni til Hallgrímskirkju en stofan er björt og notaleg með kvistglugga.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir af þessari litríku eign. Gulur veggur í eldhúsi og bleikt baðherbergisloft vekur þar sérstaka athygli. 

Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is

Tengdar fréttir

Björt og falleg risíbúð á Bragagötu

Á Bragagötu í Reykjavík er nú til sölu einstaklega smekkleg íbúð. Þrátt fyrir að vera aðeins 59 fermetrar er hún vel skipulögð og hefur tvö svefnherbergi.

Sigrún Ósk og Jón Þór selja á Akranesi

Fjölmiðlakonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og knattspyrnuþjálfarinn Jón Þór Hauksson hafa sett á sölu heimili sitt að Bjarkargrund 46 á Akranesi en þau eru að byggja sér hús. 

Kolbrún Pálína selur íbúðina í Lindarsmára

Kolbrún Pálína Helgadóttir markaðsfulltrúi hjá Icepharma hefur sett íbúð sína í Hlíðunum í Kópavogi á sölu. Kolbrún Pálína er mikill fagurkeri og íbúðin einstaklega smekkleg og falleg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.