Báðir bílar eru færir um að komast úr kyrrstöðu upp í 100 km/klst. á um 3 sekúndum. Á myndbandinu má sjá að Rivian er eldsnöggur.
Meðfylgjandi er myndband af spyrnunni frá Throttle House.
Bílarnir voru bæði með hárri hleðslu, um 80% og á meðmæltri hleðslustöðu, með lágri fjöðrunarstillingu og í akstursstillingu sem býður mest afl.
Dekkin undir Rivian R1T og hraðatakmörkun á Hummer-num sem kemst ekki hraðar en 171 km/klst. Eru meðal ástæðna að R1T var augljóslega fljótari. Hinn þyngri og stærri GMC Hummer EV er þó ótrúlega fljótur.
GMC Hummer pallbíllinn:
- 1000 hestöfl
- 4103 kg.
- 0-100 km/klst. um 3 sekúndur
Rivian R1T pallbíllinn:
- 800+ hestöfl
- 3242 kg.
- 0-100 km/klst. um 3 sekúndur
Drægni beggja bíla er rúmlega 480 km en R1T er talsvert ódýrari. Hummer EV útleggst á um 14,3 milljónir króna en Rivian kostar um 7,9 milljónir króna.