Matur

Páskasmákökur Elenoru Rósar eru fullkomnar fyrir helgina

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Elenora Rós bakaði kökur fyrir páskana í þættinum Ísland í dag.
Elenora Rós bakaði kökur fyrir páskana í þættinum Ísland í dag. Samsett

Bakarinn Elenora Rós sýndi einfalda og ljúffenga uppskrift að súkkulaðibitakökum sem tilvalið er að baka um páskana í þættinum Ísland í dag. Í uppskriftinni eru litlu súkkulaðieggin vinsælu sem flestir eru farnir að kannast við.

Hér fyrir neðan er hægt að horfa á innslagið. Elenora ætlaði alltaf að verða bakari og segir frá bakstursferðalaginu í þættinum. Fyrir neðan spilarann má finna uppskriftina að kökunum sem hún bakaði í þættinum. 

Klippa: Ísland í dag - Elenora Rós bakar súkkulaðibitakökur

PÁSKASMÁKÖKUR

  • Smákökur:
  • ­ 230 g smjör við stofuhita
  • ­ 210 g sykur
  • ­ 210 g púðursykur
  • ­ 2 stk egg
  • ­ 340 g hveiti
  • ­ 8 g matarsódi
  • ­ 4 g lyftiduft
  • ­ 5 g salt
  • ­ 1 pakki Royal vanillubúðingur
  • ­ 100 g hvítt sukkulaði
  • ­ 100 g súkkulaðiegg
  • ­ 100 g ljóst sukkulaði

Aðferð:

1. Forhitið ofninn á 190°C.

2. Þeytið sykurinn, púðursykurinn og smjörið þar til léyy og ljóst.

3. Bætið eggjunum saman við einu í einu og hrærið vel á mili.

4. Bætið saman við hveitinu, duftinu úr Royal búðingnum, matarsódaa, lyftidufti og salti saman við og hrærið þar til vel komið saman.

5. Bætið súkkkulaðinu saman við.

6. Takið ísskeið og skiptið deiginu í jafnstórar deigkúlur.

7. Setjið deigkúlurnar á pappírsklædda bökunarplötu með góðu bili á milli.

8. Bakið í 8-10 mínútur eða þar til endarnir eru farnir að bakast og miðjan er enn mjúk.

Hægt er að fylgjast með Elenoru Rós á Instagram.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.