Heildarlausnir í öryggisbúnaði hjá Vörn Vörn 18. maí 2022 14:26 Jón Hermannsson, eigandi fyrirtækisins Vörn segir öryggiskerfi og myndavélar algeng í einbýlishúsum og húsfélög fjölbýlishúsa láti í auknum mæli setja upp myndavélar í sameiginlegum hjólageymslum og á útisvæðum. „Öryggismyndavélar hafa gríðarlegan fælingarmátt. Líkurnar á að óprúttinn aðili brjótist inn eru 80% minni ef öryggismyndavélar eru sýnilegar,“ segir Jón Hermannsson, eigandi fyrirtækisins Vörn.
Vörn hefur í 14 ár sett upp öryggiskerfi og myndavélar fyrir heimili og fyrirtæki og býður hágæða tækjabúnað frá Dahua. Jón segir ekkert verk of stórt né of lítið fyrir Vörn. Færst hafi í vöxt að einkaheimili setji upp öryggismyndavélar Tólfhundruð fyrirtæki með búnað frá Vörn „Við höfum sett upp kerfi í yfir tólfhundruð fyrirtækjum og þjónustum einnig einkaheimili. Það er mjög algengt að öryggiskerfi og myndavélar séu sett upp í einbýlishúsum og þá er talsvert um að húsfélög fjölbýlishúsa láti setja upp myndavélar í sameiginlegum hjólageymslum og á útisvæðum. Slíkur öryggisbúnaður kemur að miklu gagni ef skemmdir verða á bílum eða reiðhjól hverfa úr geymslum og hefur meðal annars komið að gagni í ofbeldismálum. Þessi tækjabúnaður er á viðráðanlegu verði í dag. Einföld myndavél getur kostað innan við tuttugu þúsund krónur,“ útskýrir Jón. Hann bendir á að þegar um fjölbýli sé að ræða þurfi undirskrifað samþykki á húsfundi. Þá þurfi ávallt að setja upp merkingar sem gefa fólki til kynna að svæðið sé vaktað með öryggismyndavélum. „Við getum séð um tæknivinnu og uppsetningu og sjáum þá til þess að allt sé samkvæmt reglugerðum. Persónuverndarlög hér á landi eru ströng en sanngjörn þegar kemur að öryggi og mannslífum,“ útskýrir Jón. Gervigreind þekkir ákveðin andlit úr „Dahua er okkar samstarfsaðili en það fyrirtæki er í fremstu röð á heimsmælikvarða hvað varðar framþróun í öryggistækni. Þar má nefna gervigreind sem þekkir andlit sem hlaðið hefur verið inn. Slíkt nýtist sérstaklega stærri verslunum en kerfið gerir þá starfsfólki viðvart ef síbrotamaður eða einstaklingur með sögu um innbrot, er kominn inn í verslunina. Þessi tækni nýtist skemmtistöðum einnig í málum er varða byrlanir og líkamsárásir. Vörn vinnur þétt með lögreglunni og sinnir útköllum oft í viku. Þessi tækni hefur skilað miklum árangri og er innan persónuverndarlaga, svo lengi sem skýrar merkingar eru uppi sem taka fram að svæðið sé vaktað með öryggismyndavélum.“ Stóraukið öryggi á sjó „Varðandi lífsbjargir á sjó bjóðum við upp á gervigreindar Thermal myndavélar sem ramma inn ákveðið svæði og gera viðvart þegar manneskja fer út fyrir það svæði. Sem dæmi eru slíkar vélar settar í stefni skips, vélin rammar skipið inn með línu og Thermal kerfið þekkir manneskjur frá hlutum á dekkinu. Ef manneskja lendir út fyrir línuna sér kerfið viðkomandi og getur einnig elt manninn í sjónum,“ útskýrir Jón. Brautryðjendur í öryggistækni „Við reynum alltaf að vera skrefinu á undan. Vörn var á sínum tíma fyrsta öryggisfyrirtækið sem bauð upp á öryggismyndavélar sem hægt var að fylgjast með í gegnum síma. Við erum einnig brautryðjendur þegar kemur að öryggisbúnaði með gervigreind sem þekkir úr andlit. Þá skerum við okkur frá öðrum fyrirtækjum þar sem við förum ekki fram á að fólk skrifi undir þjónustusamning. Viðskiptavinur fær upplýsingarnar samstundis í símann og getur skoðað sjálfur í myndavélinni hvað er að gerast. Við erum ekki milliliður og þannig spara viðskiptavinir gríðarlegar upphæðir.“
Hús og heimili Mest lesið Gapandi hissa að sjá túrista skipta á milli sín mat: „Ég sárlega vorkenndi þeim“ Neytendur Barátta Seðlabankans löngu töpuð Viðskipti innlent Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur „Við erum ekki að fara að vinna“ Neytendur Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Ódýrara að velja erlenda gjaldmiðilinn í posum erlendis Neytendur Formaðurinn neiti að horfast í augu við einkunnaverðbólgu Viðskipti innlent Tæpar 2500 krónur fyrir litla samloku á Geysi Neytendur Horfurnar versna hjá Play sem kippir afkomuspá úr gildi Neytendur Hugmyndir fyrir tómlega vinnustaði og leiðinlega vinnudaga Atvinnulíf Fleiri fréttir 17 manns látist í slysum sem rekja má til svefns eða þreytu Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Greiðsluáskorun Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Ný og nútímaleg sveit í borg Engin málamiðlun þegar kemur að krafti Polestar 4 Hliðarbil ökutækja frá hjólreiðafólki 1.5 metrar 18 holu vatna- og skógavöllur með töfrandi fjallasýn Einn glæsilegasti golfvöllur landsins í Kiðjabergi Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Áhersla á öryggi viðskiptavina Eftirvagnar breyta aksturseigileikum bílsins Tæknin tekur yfir leigubílamarkaðinn Hægt að tilkynna holur á vegum á vegbót.is – FÍB er alltaf á vaktinni Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Nýjungar á Hótel Grímsborgum Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Sjá meira