Sport

Dagskráin í dag: Kemur í ljós hverjir mæta Barcelona

Valur Páll Eiríksson skrifar
Badalona getur tryggt sér sæti í undanúrslitum og mætt grönnum sínum í Barcelona.
Badalona getur tryggt sér sæti í undanúrslitum og mætt grönnum sínum í Barcelona. DAX Images/NurPhoto via Getty Images

Hörkuleikur er á dagskrá í spænska körfuboltanum í dag þegar í ljós kemur hvaða lið mun mæta deildarmeisturum Barcelona í undanúrslitum í úrslitakeppninni.

Þrátt fyrir að landsleikjahlé sé fram undan í fótbolta karla og að Íslandsmótum í innanhúsíþróttum sé lokið er enn að finna beinar útsendingar frá íþróttaviðburðum á rásum Stöðvar 2 Sport.

Ein bein útsending er í dag þegar Badalona tekur á móti Lenovo Tenerife í þriðja og síðasta leik liðanna í 8-liða úrslitum í úrslitakeppni spænska körfuboltans. Bæði lið unnu stórsigur á heimavelli í einvíginu, Badalona vann fyrsta leikinn 100-68 og Tenerife þann næsta 103-76. Áhugavert verður að sjá hvort heimavallarrétturinn hjálpi þeim fyrrnefndu er liðin mætast klukkan 18:50 á Stöð 2 Sport 2 í kvöld.

Liðið sem fagnar sigri mun mæta Barcelona í undanúrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×