
Mitsubishi Eclips Cross var mest selda undirtegundin í maí en af þeim Mitsubishi bifreiðum sem voru nýskráðar voru 359 Eclipse Cross bílar. Næst algengasta undirtegundin var Toyota Rav4, 204 slíkar bifreiðar voru seldar í maí. Land Cruiser var þriðja mest selda undirtegundin með 100 nýskráð eintök.
Nýskráningar líðandi árs eru til þessa 11.512 á móti 3.930 afskráningum. Ökutækjafloti landsins er því að stækka um sem nemur 7.582 ökutæki, það sem af er ári. Á sama tíma í fyrra námu nýskráningar ökutækja 7.309 eintökum. Aukning á milli ára nemur því um 57,5%.

Orkugjafar
Tengiltvinnbílar voru vinsælastir í maí með 864 bíla nýskráða. Dísel var næst vinsælasti kosturinn með 754 ökutæki nýskráð. Bensín í þriðja sæti með 604 ökutæki nýskráð. og rafmagn í því fjórða með 510 ökutæki skráð.
Vistvænir kostir, tvinnbílar, metan, rafmagn og tengiltvinnbílar voru samtals 1.852. Hreinir jarðefnaeldsneytisbílar, bensín og dísel voru nýskráð í samtals 1.358 eintökum.