Sport

Dagskráin í dag: Spænski körfuboltinn, sænski fótboltinn og golf

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Rosengård sækja Linköping heim í dag.
Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Rosengård sækja Linköping heim í dag. Twitter @fotbollskanal

Sportrásir Stöðvar 2 bjóða upp á fimm beinar útsendingar á þessum fína föstudegi.

Við hefjum leik á European Open á DP World Tour klukkan 11:00 á Stöð 2 Golf. Klukkan 17:00 er svo komið að US Women's Open á sömu rás, áður en The Memorial Tournament hefst klukkan 18:00 á Stöð 2 Sport 4.

Þá er einn leikur á dagskrá í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta þegar Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Rosengård heimsækja Linköping á Stöð 2 Sport 2 klukkan 15:55.

Við endum dagskrána svo á fyrstu viðureign Barcelona og Badalona í undanúrslitum spænsku ACB-deildarinnar í körfubolta á Stöð 2 Sport 2 klukkan 18:50.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×