Sport

Dagskráin í dag: Úrslit á Spáni og risamót í golfi

Atli Arason skrifar
Ástralinn Cameron Smith leiðir PGA mótaröðina á átta höggum undir pari.
Ástralinn Cameron Smith leiðir PGA mótaröðina á átta höggum undir pari. AP Photo

Það eru fjórar beinar útsendingar á sport stöðvum Stöðvar 2 í dag. Það er nóg af golfi og úrslitin í spænsku ACB deildinni halda áfram.

Stöð 2 Sport 2

Leikur tvö í úrslitaeinvígi spænska körfuboltans, ACB, heldur áfram þar sem Real Madrid og Baskonia eigast við klukkan 15.50.

Stöð 2 Sport 4

The Memorial Tournament á PGA mótaröðinni er á dagskrá klukkan 16.30.

Stöð 2 Golf

European Open mótið á DP World Tour heldur áfram í beinni útsendingu klukkan 11.00.

US Women’s Open tekur við klukkan 16.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×