Sport

Dagskráin í dag: Úrslit á Spáni og Besta deildin

Atli Arason skrifar
Mist Edvardsdóttir og Ída Marín Hermannsdóttir eiga leik gegn Aftureldingu.
Mist Edvardsdóttir og Ída Marín Hermannsdóttir eiga leik gegn Aftureldingu. Vísir/Vilhelm

Það eru sex beinar útsendingar á sport stöðvum Stöðvar 2 í dag þegar þriðji leikurinn í úrslitaeinvígi spænska körfuboltans og 8. umferð Bestu-deildar kvenna klárast.

Stöð 2 Sport

Breiðablik og Selfoss eigast við í Bestu-deild kvenna og hefst útsendingin klukkan 19.05.

Bestu mörkin munu svo gera upp leiki umferðarinnar klukkan 22.00.

Stöð 2 Sport 2

Þriðji leikur Baskonia og Real Madrid í úrslitum ACB deildarinnar í körfubolta á Spáni er í beinni útsendingu klukkan 18.50. Real Madrid leiðir einvígið 2-0.

Stöð 2 BD

ÍBV tekur á móti Keflavík í Bestu-deild kvenna klukkan 17.55.

KR fær Þrótt í heimsókn klukkan 19.10.

Viðureign Vals og Aftureldingar er á dagskrá klukkan 20.10.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×