Sport

Dagskráin í dag: Golf frá morgni til kvölds

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Scottie Scheffler hefur leikið fyrstu tvo hringin á fjórum höggum undir pari á Canadian Open.
Scottie Scheffler hefur leikið fyrstu tvo hringin á fjórum höggum undir pari á Canadian Open. Vaughn Ridley/Getty Images

Íþróttalífið hefur heldur hægt um sig á þessum annars ágæta laugardegi, en golfáhugafólk ætti þó að geta glaðst yfir dagskrá dagsins á sportrásum Stöðvar 2.

Þrjár beinar útsendingar eru á dagsrká á sportrásum Stöðvar 2 í dag og koma þær allar úr heimi golfsins.

Við hefjum leik á Scandinavian Mixed klukkan 11:30 á DP World Tour, en útsendingin verður á Stöð 2 Golf.

Klukkan 17:30 er svo komið að Canadian Open á sömu rás, en það er hluti af PGA-mótaröðinni.

Að lokum er það svo ShopRite LPGA Classic á LPGA-mótaröðinni klukkan 18:00 á Stöð 2 Sport 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×