Lífið

Þór­dís um vand­ræða­legasta stefnu­mótið: „Ég hugsaði bara, ekki fokking snerta mig!“

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir var fengin til að svara heldur óþægilegum spurningum í viðtalsliðnum Hitasætið í þættinum Veislan á FM957.
Leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir var fengin til að svara heldur óþægilegum spurningum í viðtalsliðnum Hitasætið í þættinum Veislan á FM957. aðsend

„Ég er strax byrjuð að svitna á efri vörinni,“ segir leikkonan Þórdís Björk í byrjun viðtalsliðsins Hitasætið í Veislunni með Gústa B. 

í Hitasætinu var leikkonan var spurð spjörunum úr um helst til vandræðaleg málefni og var fyrsta spurningin um vandræðalegasta stefnumótið. 

Spúði eins og dreki á vandræðalegu stefnumóti

„Ég hef eiginlega ekki verið að deita neitt mikið ég hef eiginlega alltaf verið í sambandi,“ segir Þórdís en í dag er hún trúlofuð tónlistarmanninum Júlí Heiðari Halldórssyni.

Þórdís segist þó muna eftir stefnumóti sem hún fór eitt sinn á sem reyndist taka full mikið á taugarnar. Stefnumótið hafi verið mjög vandræðalegt og það hafi nær alfarið verið hennar sök.

Ég var búin að vera eitthvað skrítin í maganum og ég fæ gubbupest á veitingastaðnum. Þannig að ég fer inn á klósett og byrja bara að spúa eins og dreki.

Þorði ekki heim af stefnumótinu

Þórdís segist hafa verið á þessum tíma frekar skotin í stráknum og því hvorki þorað né viljað fara heim af stefnumótinu þrátt fyrir að hafa verið orðin frekar veik.

„Ég var bara í einhverju kvíðakasti, að fá mér vatn, skvetta framan í mig vatni og svitna alls staðar. Hann var svo bara að reyna að halda utan um mig.“

„Bíddu var hann með þér inni á klósetti?“ spyr Gústi.

Nei, þegar ég kom fram til að halda áfram að reyna að borða.... þessa átta rétta máltíð sem hann var að splæsa á mig!

Þórdís gerir svo grín af sjálfri sér hvernig hún hafi reynt að komast undan faðmlögunum og verið að hoppa á klósettið í sífellu.

„Ég hugsaði bara, ekki fokking snerta mig!“

Þolir ekki smjatt

Einnig var Þórdís spurð út í hvað það er lætur hana finna fyrir klígju og svaraði hún því að það væri ótal margt sem gerði það en smjatt væri þar ofarlega á lista.

Oh my god, Júlí kærastinn minn smjattar og ég held reyndar að ég geri það líka.

Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á þáttinn Veislan í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.